Heilbrigðisráðherra segir að ekki standi til að breyta fíkniefnalöggjöfinni sem stendur. Hún segir að forvarnir og víðtæk nálgun séu nauðsynleg til að takast á við fíkniefnavandann.
Ekki standi til að breyta fíkniefnalöggjöfinni
Í fréttaskýringaþættinum Kveik í síðasta mánuði var fjallað um fíkniefnavandann og þá miklu aukningu sem hefur orðið í notkun krakks hér á landi. Þar kom fram að þrátt fyrir að stjórnvöld verji milljörðum árlega í stríðinu gegn fíkniefnum sé gríðarlegt framboð fíkniefna hér á landi og aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn af kókaíni og í fyrra.
Alma Möller, heilbrigðisráðherra, segir þáttinn sláandi og dragi fram hversu umfangsmikill fíkniefnavandinn sé. Ýmsar leiðir þurfi að fara.
„En það er auðvitað engin ein lausn við fíkniefnavandanum,“ segir ráðherra.
Eins og er standi ekki til að breyta fíkniefnalöggjöfinni.
„Við breyttum henni síðast í fyrra þegar við breyttum því hvernig skaðaminnkandi úrræði eru notuð. En ef þú ert að spyrja um það sem hefur verið kallað afglæpavæðing, eða sem mér finnst betra að kalla refsileysi, þá er það ekki til skoðunar nú, hvað sem síðar verður.“ segir Alma, og bætir við:
„Við vinnum eftir stefnu um skaðaminnkun og aðgerðaáætlun þar að lútandi og þessi aðgerð var ekki í tillögum sérfræðinganna sem unnu þá stefnu.“
Þannig að það er engin vinna í ráðuneytinu varðandi breytingar á þessari löggjöf?
„Ekki eins og er,“ segir Alma.
Allt samfélagið undir
Í Kveik var rætt við forstöðumann meðferðarheimilisins Krýsuvíkur sem vill að stjórnvöld ráðist í öflugar forvarnir. Kókaínfíkn sé að aukast hér á landi og biðlistar eftir meðferðarúrræðum sífellt að lengjast. Alma segir samfélagið allt undir og því nauðsynlegt að beita öflugum forvörnum.
„Varðandi biðina þá er í gangi verkefni, tilraunaverkefni, þar sem er um að ræða samvinnu milli Sjúkrahússins á Vogi, Hlaðgerðarkots og Krýsuvíkur, þar sem þeir skjólstæðingar fá forgang í afeitrun. Þannig að við munum sjá hvernig það verkefni gengur. En ég er algjörlega sammála, forvarnir og víðtæk nálgun á fíkniefnavandann eru það sem gildir.“