Elliði Vignisson var í dag endurráðinn bæjarstjóri í Ölfusi. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook síðu sinni.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins fór fram í dag og var Elliði endurkjörinn bæjarstjóri án allra mótatkvæða. Hann segist fullur eftirvæntingar fyrir komandi kjörtímabili.
Elliði hefur verið bæjarstjóri í Ölfusi frá árinu 2018, áður gegndi hann embætti bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.