Hver stórviðburðurinn á fætur öðrum hefur farið fram á Norðurlandi vestra undanfarnar vikur. Landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal, Húnavaka á Blönduósi og nú sjö daga bæjarhátíð á Hvammstanga, sem ber heitið Eldur í Húnaþingi.
„Sjö daga hátíð. Sumum finnst þetta of mikið en flestir taka þátt í öllu. Mikil spenna og tilhlökkun bara út um allt,“ segir Patrekur Óli Gústafsson.
Fjölskyldu- og bæjarhátíðin hófst á mánudaginn þó að formleg setningarathöfn hefði farið fram í gær, þar sem gestum var boðið upp á kjötsúpu. Fjölbreytt dagskrá er alla dagana og bærinn vel skreyttur. Að sögn viðburðarstjóra hátíðarinnar var markmiðið að hafa frítt á sem flesta viðburði.