El Lobo (Úlfur Kolka) gefur út EP plötuna The Avalanche í dag, föstudaginn, 29. maí, og verður útgáfunni fagnað í kvöld á Prikinu frá kl. 20-23.
El Lobo er tónlistarframleiðandi og rappari sem mótaðist að mestu leyti tónlistarlega á árunum sem hann bjó í Inglewood í Los Angeles, þar sem hann er meðlimur í Wrongkind Ingles, sem er þekkt gangsta rap collective í Inglewood og útgefandi plötunnar.
Tónlist sem El Lobo hefur pródúserað hefur fengið yfir sjö milljón spilanir og umfjallanir hjá miðlum á borð við XXL Magazine, HiphopDX, LA Weekly, Noisey, Hypebeast og 2DopeBoyz, auk þess að fá co-sign frá röppurum á borð við Earl Sweatshirt, Run The Jewels og Planet Asia.
The Avalanche, var unnin í London sem lokaverkefni í MA-námi El Lobo í tónlistarframleiðslu við Institute of Contemporary Music Performance. Verkefnið snerist að hluta til um samskynjun hans á hljóði (chromesthesia).

Mikið er um gestagang á plötunni, bæði frá Los Angeles og London; Ish Matic, DJ Survive, Deez Inglez, YeloHill (sem er að vekja mikla athygli í Los Angeles um þessar mundir), Liseli B, Hodago, Kem Times Two og Oliver Sudden. Platan er hljóðblönduð og masteruð í samstarfi við Grammy-verðlaunahafann James Auwarter (Rihanna, Kanye West, Ludacris).