Reykjavíkurborg gerði ekki úttekt á því hvaða áhrif styttri þjónustutími frístundaheimila myndi hafa á mönnun heimilanna.
Þá var ekki leitað til foreldra barna, starfsmanna frístundaheimila eða annarra hagsmunaaðila þegar ákvörðun var tekin um að skerða þjónustutímann.
Þetta kemur fram í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Borgarstjórn samþykkti í síðasta mánuði að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag frá og með ágústmánuði.
Frístundaheimilum borgarinnar verður því lokað klukkan 16.30 en ekki klukkan 17 eins og tíðkast hefur.
Samkvæmt svari borgarinnar nemur sparnaðurinn af þessari ráðstöfun rúmlega 166 milljónum króna á ári. Af almennum frístundaheimilum hlýst 84 milljóna króna sparnaður og í sértækum frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum nemur hann rúmlega 82 milljónum króna.
Veldur áhyggjur af mönnun
Að sögn starfsmanna frístundaheimila veldur styttri þjónustutími heimilanna ákveðnum áhyggjum af mönnun fyrir haustið.
Skólafólk hefur gjarnan sótt í þessi störf. Með því að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag styttist vinnuvikan um tvær og hálfa klukkustund og eru áhyggjur uppi um að það leiði til þess að störfin séu ekki jafn samkeppnishæf og önnur störf sem skólafólk sækist eftir.
„Við leggjum mikinn metnað í að manna stöður hratt fyrir haustið. Það gæti orðið flóknara að manna nú af því að fólk getur nú fengið minna starfshlutfall,“ sagði Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar og fulltrúi stjórnenda frístundamiðstöðva í skóla- og frístundaráði, í samtali við mbl.is fyrr í mánuðinum.
„Þá erum við kannski ekki eins samkeppnishæf við önnur störf sem eru í boði fyrir ungt fólk.“
Mest skorið niður á skóla- og frístundasviði
Þessa ráðstöfun má rekja aftur til ársins 2024 þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2025 til 2029 var samþykkt.
Hún var þó ekki samþykkt fyrr en í apríl og hefur því ekki verið tryggt fjármagn til að tryggja þjónustutíma frístundaheimila til klukkan 17 frá áramótum 2025.
Í áætluninni var samþykkt að hætta þjónustu frístundaheimila á löngum dögum, loka sumarfrístund í fimm vikur í stað fjögurra og stytta þjónustutíma frístundaheimila.
Gripið var til þessa til að brúa halla Reykjavíkurborgar en niðurskurðurinn var mestur á skóla- og frístundasviði.
Tímalína
Fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árin 2025 til 2029 samþykkt í desember 2024.
Borgarstjórn samþykkir í apríl 2026 að stytta þjónustutíma frístundaheimila um hálftíma á dag.
22. ágúst 2026 mun styttri þjónustutími taka gildi þar sem frístundaheimilum borgarinnar verður lokað klukkan 16.30.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.