Bandaríkjastjórn hefur aflétt þvingunaraðgerðum á Francescu Albanese, sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu. Albanese hefur í starfi sínu gagnrýnt ísraelsk stjórnvöld harðlega vegna illrar meðferðar og árása þeirra á Palestínumenn á Gaza.
Marco Rubio utanríkisráðherra tilkynnti um þvingunaraðgerðirnar á hendur Albanese í júlí á síðasta ári og sagði hana vera uppfulla af gyðingahatri, styðja hryðjuverk og fyrirlíta Bandaríkin, Ísrael og Vesturlönd. Ísraelar hafa einnig sakað hana um gyðingahatur.
Þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna höfðu meðal annars þau áhrif að Albanese gat ekki notað nein alþjóðleg kreditkort eða framkvæmt millifærslur í bönkum. Umdæmisdómarinn Richard Leon, sem aflétti þvingunaraðgerðunum á Abanese, sagði að réttur til tjáningarfrelsis væri alltaf almannahagsmunir.