Sarah Rosado hefur gefið orðtakinu að leika sér með mat nýja merkingu. Listakonan, sem er búsett í Bronx í New York, býr til m.a. portrettmyndir af frægu fólki úr ætum hráefnum á borð við morgunkorn, tómatsósu, spagettí, grænmeti og Nutella.
Hugmyndin kviknaði fyrir tæpum áratug þegar hún sat yfir morgunmatnum og hlustaði á John Lennon. Síðan þá hefur hún skapað myndir af fjölda þekktra einstaklinga, meðal annars Jennifer Lopez, Post Malone, Mariah Carey og Alysu Liu. Verkin geta tekið allt að sex klukkustundir í vinnslu og byrjar hún jafnan á skissu áður en hún raðar hráefnunum saman.
Verk Rosado hafa meðal annars birst í Today og í Ripley’s Believe It or Not. Þótt hún starfi við markaðsmál í dagvinnu sinni segir hún listina vera órjúfanlegan hluta af því hver hún er.