Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir benda til þess að næfurþunnur núverandi meirihluti Repúblikana falli og þegar uppi verður staðið hafi Demókratar um 230 sæti af 435 – 25 sæta meirihluta.
Í öldungadeildinni er erfiðara að spá fyrir um niðurstöðu en með hverjum degi er líklegra að Demókratar vinni upp þau fjögur sæti sem þeir þurfa til að tryggja 51 sæti af 100. Raunar er staðan þannig núna, samkvæmt nýjustu könnun New York Times, að frambjóðendur Demókrata mælast með forskot eða innan skekkjumarka í fimm ríkjum þar sem Donald Trump hlaut yfirburðakosningu fyrir tveimur árum: Texas, Alaska, Ohio, Iowa og Kansas.
Fréttastofa fór yfir sviðið og helstu slagina í öldungadeildinni fyrir skemmstu og má lesa þá yfirferð hér að neðan.
Hvað er undir?
En hvað vinna Demókratar með því að tryggja sér meirihluta á þingi þegar Trump hefur sí og æ gengið fram hjá eigin flokksmönnum í þinginu í lykilmálum og tekið sér vald sem á sér lítil fordæmi á síðari tímum?
Besta dæmið er vitanlega frá fyrra kjörtímabili Trumps. Í miðtímabilskosningunum 2018 bættu Repúblikanar við meirihluta sinn í öldungadeildinni en Demókratar unnu góðan sigur í fulltrúadeildinni þar sem þeir fengu 235 sæti.
Demókratar létu einskis ófreistað við að þrýsta á Trump og sannarlega reyndust þeir forsetanum óþægur ljár í þúfu og töfðu fyrir honum á ýmsan hátt.
Þegar upp var staðið náðu þeir ekki að knýja fram neinar breytingar á stefnu eða embættisverkum Trumps.
Demókratar taka fulltrúadeild en ekki öldungadeild: Slagur um rannsóknir og fjárlög
Ef Demókratar taka fulltrúadeildina að þessu sinni en mistekst að snúa öldungadeildinni við liggja möguleikarnir einna helst í því að hefja rannsóknir á embættisverkum Trump-stjórnarinnar.
Þeir geta stefnt Trump-liðum til skýrslugjafar fyrir þingnefndum en hins vegar gætu embættismennirnir virt þær stefnur að vettugi þar sem ljóst er að dómsmálaráðuneyti Trumps framfylgir þeim ekki.
Fulltrúadeildin getur samþykkt allra handa frumvörp, til dæmis um heilbrigðiskerfið, velferðarþjónustu, þungunarrof og þess háttar sem Repúblikanar í öldungadeildinni slá af og verða þá bara táknræn.
Þá getur fulltrúadeildin ákært forseta til embættismissis fyrir brot í starfi með einföldum meirihluta. Öldungadeildin tekur hins vegar ákvörðun um sekt eða sýknu eftir réttarhöld.
Engar líkur eru á að Repúblikanar í öldungadeild sakfelli Trump en málareksturinn gæti haldið honum og hans fólki uppteknu á meðan. Nýlegir dómar hæstaréttar Bandaríkjanna gefa forseta líka víðfeðma friðhelgi gegn ákærum. Þeir gætu nýst til að takmarka rannsóknarheimildir þingsins.
Harðasti slagurinn í þessari stöðu yrði vafalítið um fjárlög og hækkun skuldaþaks ríkissjóðs.
Það gæti orðið til þess að starfsemi ríkisins gæti lagst niður að hluta (e. government shutdown) eins og gerst hefur af og til síðustu ár.
Demókratar ná meirihluta í báðum deildum: Geta stöðvað skipanir dómara
Ef Demókratar ná meirihluta í báðum deildum hafa þeir fastari tök á forsetanum.
aÞau felst einna helst í því að geta staðið í vegi fyrir skipunum dómara allt upp í hæstarétt. Losni staða í hæstarétti á seinni hluta kjörtímabils Trumps eru yfirgnæfandi líkur á því að Demókratar í öldungadeild neiti að taka tilnefningu forsetans til skoðunar, líkt og gerðist undir lok forsetatíðar Baracks Obama þegar Repúblikanar neituðu að fjalla um skipun Merricks Garland.
Eitt af fyrstu verkum Trumps eftir fyrri embættistöku var svo að skipa íhaldssaman dómara í sætið auða.
Varðandi lagasetningu er forsetinn með neitunarvald, auk þess sem minnihluti Repúblikana getur staðið í vegi fyrir Demókrötum með málþófi. Ólíklegt má þykja að meiriháttar lög verði samþykkt nema með samþykki Trumps.
Með stjórn á báðum deildum hafa Demókratar talsvert meira vægi í fjárlagagerð en engu að síður er óhætt að spá miklum deilum og líkum á því að starfsemi ríkisins stöðvist að hluta í þeim átökum.
Þingstörf með neikvæðum formerkjum
Í venjulegum aðstæðum væri horft til komandi kosninga með það að sjónarmiði að nýtt þing léti til sín taka í lagasetningu og stefnumótun. Síðustu misseri hefur hins vegar fjarað fljótt undan vægi Bandaríkjaþings. Það má ekki síst rekja til skautunarinnar sem hefur heltekið stjórnmálasviðið síðan í valdatíð Obama.
Afleiðingin hefur verið sú að forsetar hafa í auknum mæli notast við forsetatilskipanir (e. executive orders) til að koma málum til framkvæmdar. Enginn hefur verið eins frekur til fjörsins að því leyti heldur en núverandi forseti.
George W. Bush, Obama og Joe Biden nýttu tilskipanir um 35 til 40 sinnum á ári á valdatíð sinni en Trump var strax á fyrra kjörtímabili sínu farinn að marka sér sérstöðu með 55 tilskipunum á ári að meðaltali.
Við valdatökuna í janúar tók hann svo til óspilltra málanna og við árslok hafði hann undirritað 225 tilskipanir, sem er það mesta sem sést hefur síðan á millistríðsárunum þegar Franklin D. Roosevelt réði ríkjum í Hvíta húsinu.
Þannig er bandaríska þingið, í núverandi umhverfi, annaðhvort afgreiðslustofnun fyrir forsetann eða miðstöð andstöðu til að halda aftur af sitjandi forseta... sem er ekki beint í anda þrískiptingar ríkisvalds.