Eitt er að lofa, annað að efna

Eitt er að lofa, annað að efna

Eitt er að lofa, annað að efna

Eitt er að lofa, annað að efna

Flestir leið­togar vildu draga úr svína­eldi til útflutn­ings, en útflutn­ingur á grísum hefur aldrei verið meiri.

Hlustaðu 07:35 · Eitt og annað

23. mars síð­ast­lið­inn, dag­inn fyrir þing­kosn­ingar í Danmörku, fóru fram í danska sjón­varp­inu TV2 hefð­bundnar leið­togaum­ræður. Þeir sem bjugg­ust við hörðum deilum um helstu átaka­mál urðu fyrir von­brigðum, því flestir leið­tog­arnir voru sam­mála um eitt mál: að draga úr svína­eldi til útflutn­ings, bæta aðbúnað á svína­búum og draga úr mengun frá land­bún­aði. Það skýtur því skökku við að útflutn­ingur á dönskum grísum hefur aldrei verið meiri en nú.

Í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna í Danmörku fyrr á þessu ári áttu flestir Danir von á því að varnar- og örygg­is­mál, þar með talin mál­efni Græn­lands og sam­skiptin við Banda­ríkin, yrðu helsta kosn­inga­málið. Þau mál höfðu verið efst á baugi um margra mán­aða skeið ásamt umfjöllun um vax­andi ofbeldi og glæpi, sem sumir þing­menn tengja einkum við fólk af erlendum upp­runa. Þessi mál voru lítt áber­andi í kosn­inga­bar­átt­unni, svo­lítið var fjallað um skóla­mál en varla minnst á efna­hags­mál, sem verður að telj­ast óvenju­legt. Svín, jarð­vegs- og vatns­mengun voru stóru málin fyrir kosn­ingar.

Þjóðarréttur og útflutningsvara

Þegar minnst er á danskan mat kemur svína­kjöt iðu­lega fyrst upp í hug­ann: kóti­lettur, beikon, snit­sel, kjöt­bollur og pur­u­steik, svo fátt eitt sé nefnt af þeim afurðum sem unnar eru úr svína­kjöti og Danir leggja sér til munns. Miðað við höfða­tölu fæð­ast hvergi í ver­öld­inni jafn­margir grísir og í Danmörku, eða um 40 millj­ónir árlega und­an­farin ár. Danir eru rúm­lega 6 millj­ónir. Fjórð­ungur þess­ara 40 millj­óna kemur dauður í heim­inn eða drepst fljót­lega. 30 millj­ónir kom­ast á legg. Tölur sýna líka að hver ein­asti Dani hest­húsar árlega, ef svo má að orði kom­ast, um það bil 30 kíló af svína­kjöti. Ef neysla ferða­manna sem leggja leið sína til Dan­merkur er talin með nemur inn­an­lands­neyslan því sem svarar til kjöts af 14 millj­ónum grísa en 16 millj­ónir eru fluttir út á fæti, ýmist sem smá­grísir eða í slát­ur­stærð. Þetta eru tölur frá árinu 2025. Stærstu kaup­endur hafa um ára­bil verið Þjóð­verjar og Pól­verjar. Á síð­asta ári nam útflutn­ings­verð­mæti grísa og svína­kjöts um 40 millj­örðum danskra króna, sem jafn­gildir um það bil 730 millj­örðum íslenskra króna.

Þurfa mikið fóður og vatn

Danmörk er lítið land, aðeins um 40 þús­und fer­kíló­metrar. Til sam­an­burðar er Ísland 103 þús­und fer­kíló­metrar. Rækt­un­ar­land í Danmörku er tak­markað og þótt svína­eldið sé fyr­ir­ferð­ar­mikið eru svínin ekki einu fer­fætling­arnir á dönskum bænda­býlum. Danski naut­gripa­stofn­inn telur um það bil 1,4 millj­ónir, þar af eru mjólk­ur­kýr 550 þús­und. Naut­gripir þurfa, líkt og svínin, mikið fóður og rækt­un­ar­land í Danmörku nægir ekki til að ala allan þennan fjölda og því er nauð­syn­legt að flytja inn í stórum stíl fóður fyrir millj­arða á hverju ári. Soja­baunir frá Brasilíu og Argent­ínu eru stór hluti þessa inn­flutn­ings.

Naut­gripir og svín þurfa einnig mikið vatn, sem er í Danmörku, eins og víða um heim, tak­mörkuð auð­lind.

40 millj­ónir
Um 40 millj­ónir grísa hafa fæðst árlega í Danmörku und­an­farin ár. Af þeim koma um tíu millj­ónir dauðir í heim­inn eða drep­ast fljót­lega.

Stórar tölur

Dönsk mjólk­ur­kýr þarf dag­lega að inn­byrða 60–80 kíló af fóðri og 100–150 lítra af vatni. Þótt svínin séu létt­ari á fóðrum þurfa þau eigi að síður sitt, bæði fast og fljót­andi. Danski svína­stofn­inn lætur frá sér allt að 40 millj­ónum tonna af hland­blönd­uðum skít, gylle, á hverju ári. Dönsk mjólk­ur­kýr lætur frá sér að minnsta kosti 60 kíló af mykju á hverjum degi, um það bil 22 tonn á hverju ári. Þótt tals­verður hluti þessa „úrgangs“ sé end­ur­nýttur, ef svo mætti að orði kom­ast, til áburðar veldur þetta gríð­ar­lega magn miklu álagi á móður jörð, nokkuð sem fáir hugs­uðu út í þangað til fyrir fáum árum. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök töl­uðu fyrir daufum eyrum.

Ögurstund

Í umræðum í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna fyrr á árinu sagði Magnus Heunicke, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, að komið væri að ögur­stund í umhverf­is­málum og nefndi sér­stak­lega svína­eldið. Hann spurði hvort æski­legt væri að ala 16 millj­ónir grísa til útflutn­ings. Hann svar­aði spurn­ing­unni sjálfur og sagði að þessi mikli útflutn­ingur væri alltof dýru verði keyptur og að nauð­syn­legt væri að draga úr honum. Svo nefndi hann líka vatnið og mikla notkun til­tek­inna efna (pesticider) í land­bún­aði. Mörgum brá við orð ráð­herr­ans, einkum um þennan gríð­ar­mikla útflutn­ing á grísum. Samtök umhverf­is­vernd­ar­sinna hafa lengi bent á hætt­una sem fylgir jafn­mik­illi notkun skað­legra efna og gert hefur verið í dönskum land­bún­aði en lítt orðið ágengt. Venstre-flokk­ur­inn, sem hefur fram til þessa verið ötull málsvari bænda og ekki mátt heyra minnst á að draga úr notkun skað­legra efna í land­bún­aði, skipti um kúrs í kjöl­far kosn­ing­anna og flokks­for­ystan styður nú tak­mörkun þess­ara efna. Þetta hefur valdið mik­illi ólgu innan flokks­ins og for­mað­ur­inn Troels Lund Poulsen verið sak­aður um svik við bændur.

Stefnt að miklum samdrætti

Eftir að end­ur­nýjuð og breytt stjórn undir for­ystu Mette Frederik­sen tók við völdum að loknum kosn­ingum í mars lýsti stjórnin því yfir að dregið skyldi veru­lega úr útflutn­ingi smá­grísa. Áhrifin yrðu þau að eld­is­grísum í land­inu myndi fækka, sem væri gott fyrir umhverfið, ekki síst vatns­bú­skap­inn. Í þessu sam­bandi var tals­vert rætt um hol­lensku leið­ina svo­nefndu en hún felst í því að vilji svína­bóndi hætta búskap kaupir ríkið hann út, bygg­ingar á búinu rifnar og ekki má þar hefja svína­eldi á ný. Markmið dönsku stjórn­ar­innar, sem kannski væri rétt­ara að nefna lang­tíma­mark­mið, væri, að sögn ráð­herra, að fjöldi grísa sem alinn væri tak­mark­að­ist við þörf­ina á heima­mark­aði.

For­sæt­is­ráð­herr­annMette Frederik­sen á Evr­ópu­þing­inu árið 2025. Rík­is­stjórn undir hennar for­ystu hefur lýst því yfir að draga skuli veru­lega úr útflutn­ingi smá­grísa.

Útflutningur aldrei verið meiri

Fyrir rúmri viku sendu dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Dyrenes Beskyttelse frá sér langa grein sem vakti mikla athygli þegar hún birt­ist í dönskum fjöl­miðlum. Þar kom fram að þrátt fyrir hástemmdar yfir­lýs­ingar ráð­herra um að draga stór­lega úr útflutn­ingi á grísum og miða fyrst og fremst að eldi til inn­an­lands­nota hefur útflutn­ingur á grísum, einkum grísum í slát­ur­stærð, stór­auk­ist. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum var fjöldi slát­ur­grísa sem fluttur var út meiri en nokkru sinni fyrr. Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli nam útflutn­ingur lif­andi grísa, smá­grísa og grísa í slát­ur­stærð, 16 millj­ónum á síð­asta ári.

Tölurnar sem birt­ust í grein dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna voru fengnar úr gögnum dönsku Mat­væla­stofn­un­ar­innar. Dag­blaðið Politi­ken fjall­aði ítar­lega um „grises­agen“ og ástæður þess að útflutn­ingur grísa í slát­ur­stærð hefur auk­ist. Ein skýr­ing þess­arar aukn­ingar er sú að fyr­ir­tækið Danish Crown, sem ann­ast slátrun og vinnslu grísa, hafði ekki undan og þurfti þess vegna að senda slát­ur­grísi úr landi. Danish Crown er langstærsta fyr­ir­tækið á þessu sviði í Danmörku og um helm­ingur þeirra grísa sem sendir voru úr landi var á vegum þess.

16 millj­ónir
Svo margir lif­andi grísir voru fluttir frá Danmörku á síð­asta ári, ýmist sem smá­grísir eða grísir í slát­ur­stærð. Útflutn­ingur slát­ur­grísa náði hámarki í sept­em­ber.

Útlendingar borga betur

Skýring Danish Crown segir ekki alla sög­una. Komið hefur í ljós að kjöt­vinnslur í Þýska­landi, Póllandi og fleiri löndum borga meira fyrir grís­ina en dönsku fyr­ir­tækin. Að und­an­förnu hefur útflutn­ingur til Ung­verja­lands auk­ist mikið og dýra­vernd­un­ar­sam­tökin hafa lýst sér­stökum áhyggjum vegna þess. Fjar­lægðin frá Norður-Jótlandi, þar sem flest svína­búin er að finna, til Ung­verja­lands er um 18 hund­ruð kíló­metrar og ferða­lagið tekur um sól­ar­hring, jafn­vel lengri tíma, og dýra­vernd­un­ar­sam­tökin segja þetta algjör­lega óvið­un­andi. Grís í slát­ur­stærð vegur í kringum 100 kíló og á þessu langa ferða­lagi standa dýrin þétt saman, með mjög tak­mark­aðan aðgang að vatni og iðu­lega engan að fóðri.

Eins og áður var nefnt vakti grein dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna mikla athygli og ef að líkum lætur kemur „grises­agen“ til kasta danska þings­ins áður en langt um líður.

#annað #efna #eitt #lofa


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/70473/eitt-er-ad-lofa-annad-ad-efna/

📰 Aðrar fréttir

Hvað kostar að reka bíl?
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hvað kostar að reka bíl?
Kílómetragjald hækkur um 15,9% um áramótin. Þegar gjaldið var sett á um síðustu áramót var olíugjald afnumið og lækkaði eldsneytisverð töluvert. Verði...
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
📅 09.11.2026 👁️ 1
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin til að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins gegn óvæn...
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
Lögregla í Póllandi rannsakar enn árásina á aðaltorginu í Kraká á laugardag þar sem sex manns létust og fimmtán særðust. Árásarmaðurinn lést svo af sá...
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
Þá verður sagt frá því að ökumaður bifreiðar, sem hafnaði úti í Kleifá á Snæfellsnesi í gærmorgun, hafi verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum. Tve...
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
Vísi barst á dögunum ábending um að Hildur Björnsdóttir væri komin á nýjan borgarstjórabíl, nánar tiltekið Audi-jeppa í stærri kantinum. Í svari við f...
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
📅 09.11.2026 👁️ 0
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
Carnival design thrives on excess. A successful float, stage element or queen’s costume may combine towering forms, saturated colour, reflective surfa...
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
Forsvarsmenn TikTok, sem er í eigu kínversks fyrirtækis, viðurkenndu í tengslum við dómsmál í Bandaríkjunum árið 2022 að barnaníðsefni væri vandamál á...
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
Það verður að segjast að Steindi var ekki beint hrifinn af nándinni í meðferðinni en Halldór náði að koma sér í stellingar og njóta. Hér að neðan má s...
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þús...
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
Þetta kemur fram í viðtali DV við Jóhann þar sem hann upplýsir um niðurstöðuna. Klippa: Íslendingur sakfelldur fyrir þjófnað í Taílandi Atvikið í Pato...
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
Markmiðið er að verða betri í golfi eða viðhalda getu sinni lengur. Á leiðinni hefur líka myndast samfélag þar sem enginn fær nóg af golfspjalli. Bjar...
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudögum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem við e...
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
📅 09.11.2026 👁️ 1
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
Kim Kardashian sætir nú harðri gagnrýni á netinu vegna jóladagatals sem hún sendi frá sér undir vörumerki sínu SKIMS.Notendur samfélagsmiðla hafa kall...
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
Kristinn Hrafnsson blaðamaður segir Stephen Miller, nýskipaðan starfsmannastjóra Hvíta hússins, öfgamann sem auki hættuna sem stafi af stjórn Donalds ...
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
Farþegar á leið til Bretlands þurfa að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi, svokallaða ETA-vegabréfsáritun (Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ...
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
📅 09.11.2026 👁️ 1
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir harðlega lagabreytingu sem gerði kleift að veita erle...
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
Kirishi-olíuvinnslan í Leníngrad-héraði er sú næststærsta í Rússlandi og er nærri Pétursborg. Við hefðbundnar aðstæður hefur þessi vinnsla verið notuð...
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
📅 09.11.2026 👁️ 1
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og ti...
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
Jónas og Valur Grettisson, blaðamaður Heimildarinnar, voru gestir Símonar Birgissonar í hlaðvarpinu Menningarvaktinni. Þar var rætt um leiksýninguna H...
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
Þrjár spár eru birtar undir yfirheitinu mannfjöldaspá: grunnspá, lágspá og háspá, en þær byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga...
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
Maðurinn heitir Gunnar Freyr Hilmarsson og er á 46. aldursári. Í ákærunni sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að hann hafi aðfararnótt 26. júlí í ...
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lög...
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn ekki. Sá var fastur í bílnum um nokkurn tíma, samkvæmt yfirlýsingu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Bjö...
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall Akureyringur, var fyrir um mánuði síðan sakfellldur fyrir þjófnað og dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fang...
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
📅 09.11.2026 👁️ 1
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur hafið sjálfstæða rannsókn á því hvort forstjóri fyrirtækisins, Jensen Huang, hafi verið skotmark erlendra njósnara...
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfell...
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út a...
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
📅 09.11.2026 👁️ 1
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 hefst í dag í ríki sem notar kol og glímir við plast­mengun. Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 ...
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa drepið föður sinn. Maðurinn er ...
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
📅 09.11.2026 👁️ 1
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
Jos Leijdekkers komst snemma í kast við lögin. Hann er fæddur 1991 og var strax 2011, þá tvítugur, dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndrá...
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar Ríki og sveit­ar­fé­lög bera sam­eig­in­lega ábyrgð á því að börn fái jöfn námstæki­færi, en kenn­arar þurfa tíma, náms­...
Sjónar­spil við Capri - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Sjónar­spil við Capri - Vísir
Capri liggur undan ströndum Napóli, við miðbik Ítalíu. Eyjan er mjög vinsæll ferðamannastaður. Um helgina var þar gefin út gul viðvörun vegna úrkomu o...
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst...
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
Dýraverndarsamband Íslands segir að myndefnið sem tekið var í innbroti í svínabú Stjörnugríss og hefur verið í dreifingu varpi ljósi á alvarleg kerfis...
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
📅 09.11.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Spjallið með Frosta LogasyniÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína...
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 35 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan ...
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
Nýtt myndskeið hefur verið birt af átökum tveggja lögreglumanna við vopnaðan árásarmann í borginni Kraká í Póllandi á laugardag. Á myndskeiðinu sést m...
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
📅 09.11.2026 👁️ 2
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
The president told the Ultimate Fighting Championship boss to "please take the job" in a Truth Social post on Saturday.
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
📅 09.11.2026 👁️ 2
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia. „Saga um svokallaðan kínverskan njósnara er órökréttur óhróður og r...
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
📅 09.11.2026 👁️ 3
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, fundar í dag með for­sæt­is­ráð­herra Katar, sem ...
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
📅 09.11.2026 👁️ 2
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samninguri...
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ, segir viðmiðin ansi ströng. Algengast sé að vörur falli á ...
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
📅 09.11.2026 👁️ 1
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
The Atlantic crossing to Spain's Canary Islands remains dangerous for migrants seeking a better life
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
📅 09.11.2026 👁️ 2
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
Maður sem skaut sex manns til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun. Hann er 24 ára Pólverji og særðist lífshættulega eftir...
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
Nýsjálenska leikkonan Melanie Lynskey vill leiðrétta sögusagnir um að hún hafi þénað 200.000 dollara (tæpar 25 milljónir króna) á þátt af Two and a Ha...
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill, sem vakið hefur mikla athygli fyrir harða gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja og íslam, segir að banna...
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
Forsetinn hefur í framhaldinu boðist til að gera samning við Demókrata um innflytjendamál og sagðist vera opinn fyrir samkomulagi um að leyfa einhverj...
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
📅 09.11.2026 👁️ 2
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista Heim­skauta­ref­ur­inn verður settur á válista spen­dýra á Íslandi í fyrsta sinn í vetur. Fjörutí...