Líkamsræktar- og samfélagsmiðlastjarnan Wes Watson játaði sekt sína í alvarlegri líkamsárás fyrir dómstóli í Miami eftir árás sem varð á líkamsræktarstöðinni Elev8tion Fitness í desember 2024.
Watson, sem er 42 ára gamall, gerði samkomulag við saksóknara þar sem hann játaði brot sitt gegn því að önnur ákæra um líkamsárás yrði felld niður. Sú ákæra tengist heimilisofbeldi. Fyrrum sambýliskona Watson hefur sakað hann um gróft andlegt og líkamlegt ofbeldi.
Maðurinn hlaut alvarlega áverka
Málið tengist átökum við Hakeem Ibrahim sem hafði ferðast frá New Jersey til að hitta Watson. Samkvæmt rannsókn lögreglu hófst rifrildi eftir að Ibrahim ýtti við Watson og hafði stillt síma sínum upp til að taka samskipti þeirra upp á myndband.
Watson tók af sér lyftingabelti og sló Ibrahim með því. Síðan réðist hann á Ibrahim ásamt nokkrum öðrum mönnum. Ibrahim hlaut meðal annars beinbrot í andliti, heilahristing og tvö glóðaraugu.
Dómur verður kveðinn upp síðar í mánuðinum
Samkvæmt samkomulaginu fara saksóknarar fram á tæplega tveggja ára fangelsisdóm, sjö ára skilorð og að Watson haldi sig frá Ibrahim. Þá þarf hann einnig að taka upp myndband þar sem hann fjallar um skaðsemi vímuefnaneyslu og mikilvægi geðheilbrigðismeðferðar.
Endanleg refsing verður ákveðin 17. júlí. Ef Watson hafnar samkomulaginu mun dómari ákveða refsingu og getur hún numið allt að 15 ára fangelsi.
Verjandinn vísar til steranotkunar og geðrænna vandamála
Verjandi Watson sagði fyrir utan dómshúsið að skjólstæðingur sinn iðraðist gjörða sinna og hefði ekki ætlað sér að valda Ibrahim slíkum meiðslum.
Hann sagði jafnframt að Watson og fjölskylda hans hefðu sætt líflátshótunum á netinu og að sálfræðingur hefði greint frá því við meðferð málsins að Watson hefði misnotað stera og glímt við ómeðhöndluð geðræn vandamál.
Hafði áður reynt að fá málið fellt niður
Watson hélt því fram í sakamálinu að hann hefði einungis varið sig. Dómari hafnaði hins vegar kröfu hans um að vísa málinu frá á grundvelli svokallaðra Stand Your Ground laga í Flórída, en þau leyfa mönnum að verja sig ef á þá er ráðist.
Ibrahim hefur einnig höfðað skaðabótamál gegn Watson þar sem hann heldur því fram að hann hafi verið lokkaður í gildru og ráðist hafi verið á hann af Watson og fleiri mönnum. Það mál er enn til meðferðar.
Sat áður níu ár í fangelsi
Watson varð þekktur á samfélagsmiðlum eftir að hafa afplánað níu ára fangelsisdóm í Kaliforníu vegna ráns. Eftir fangelsisvistina byggði hann upp stóran fylgjendahóp með myndböndum um líkamsrækt og aga.
Hann situr nú í gæsluvarðhaldi vegna annarra ákæra sem tengjast áðurnefndu heimilisofbeldismáli.