Eldur kviknaði í bílskúr einbýlishúss í Vogum í dag. Einn var fluttur til athugunar með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með væg einkenni reykeitrunar.
Guðmundur Jónsson varðstjóri hjá brunavörnum Suðurnesja segir slökkviliðið búið að slökkva eldinn og reykræsta. Hann segir eldsupptök ekki liggja fyrir að svo stöddu. Slökkvilið hafi afhent lögreglu vettvanginn til rannsóknar um eittleytið eftir að slökkvistarfi lauk.
Hann segir eitthvað um sót á efri hæð hússins, en annars hafi hún að mestu sloppið frá eldinum.