Einar Már Guðmundsson rithöfundur hlaut í gær verðlaun Jóns Sigurðssonar. Verðlaunin voru veitt í Jónshúsi, á sérstakri hátíð Jóns Sigurðssonar sem haldin var á sumardaginn fyrsta.
Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar og geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.
Í rökstuðningi forsætisnefndar Alþingis segir að Einar Már hafi lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Hann dvaldi í Danmörku við nám og störf og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, meðal annars Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Norrænu bókmenntaverðlaunin og Verðlaun Karenar Blixen.
„Einar Már er mikill sagnamaður með ljóðrænan og kraftmikinn stíl sem nýtur sérstakrar hylli og virðingar í Danmörku og er framlag hans til bókmennta og kynningar íslenskrar menningar í Danmörku þakkarvert. Fyrir það hlýtur Einar Már Guðmundsson Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026.“