Sala Íslenskrar getspár á lottóleikjum nam tæplega níu milljörðum króna á síðasta ári og jókst um rúman milljarð á milli ára. Félagið skilaði 3,42 milljarða króna hagnaði og greiddi eigendum sínum enn hærri fjárhæð í arð.
Tekjur af sölu Lottó, Jókers, Vikinglottó og EuroJackpot námu alls 8,96 milljörðum króna árið 2025, samkvæmt nýbirtum ársreikningi Íslenskrar getspár.
Árið áður voru tekjurnar 7,94 milljarðar og jukust þær því um 1,02 milljarða króna, eða 12,9 prósent, á einu ári.
Eigendurnir fengu 3,43 milljarða
Hagnaður Íslenskrar getspár nam 3,42 milljörðum króna og jókst um tæpar 496 milljónir milli ára. Hagnaðurinn nam 38,2 prósentum af sölu félagsins.
Arðgreiðslur til eigendanna þriggja námu samtals 3,43 milljörðum króna. Það var um 11 milljónum meira en sem nam hagnaði ársins, en í fjárhæðinni var 600 milljóna króna viðbótararður.
Arðurinn skiptist þannig:
- Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fékk 1,60 milljarða króna.
- ÖBÍ réttindasamtök fengu 1,37 milljarða króna.
- Ungmennafélag Íslands fékk tæpar 458 milljónir króna.
Arðgreiðslurnar jukust um 348 milljónir króna frá árinu 2024, eða um 11,3 prósent. Þær samsvaruðu 38,3 prósentum af allri sölu lottóleikja á árinu.
ÍSÍ á 46,67 prósenta hlut í Íslenskri getspá, ÖBÍ 40 prósent og UMFÍ 13,33 prósent. Hagnaðinum er varið til íþrótta- og ungmennastarfs og starfsemi í þágu öryrkja. Hluti greiðslnanna fer áfram til aðildar- og sambandsfélaga eigendanna eftir sérstökum úthlutunarreglum.
4,2 milljarðar fóru í vinninga
Vinningar ársins námu 4,22 milljörðum króna og jukust um 474 milljónir frá fyrra ári. Um 47,1 prósent söluteknanna fóru þannig í vinninga en 38,3 prósent í arðgreiðslur til eigendanna.
Fyrir hverjar 100 krónur sem komu inn vegna sölu lottóleikja fóru því rúmar 47 krónur í vinninga og rúmar 38 krónur til eigenda Getspár.
Annar stærsti kostnaðarliður félagsins á eftir vinningum var markaðskostnaður, sem nam 509 milljónum króna. Sölulaun til umboðsmanna voru 161 milljón og rekstur sölukerfa kostaði 355 milljónir.
Laun og launatengd gjöld námu 313 milljónum króna. Laun stjórnar, framkvæmdastjóra og fjögurra millistjórnenda voru samtals 109,8 milljónir og hækkuðu um 6,7 milljónir milli ára.
Heimild til ársins 2034
Íslensk getspá starfar á grundvelli laga um talnagetraunir. Félagið hefur heimild til að reka talnagetraunir til ársins 2034 og rekur Lottó, Jóker, Vikinglottó og EuroJackpot.
Félagið hafði 24 starfsmenn á árinu, auk 23 starfsmanna sem komu að útdrætti og lottóvöktum og fjögurra eftirlitsaðila sem tilnefndir voru af dómsmálaráðuneytinu.
Ósamræmi er þó í ársreikningnum um fjölda stöðugilda árið 2024. Í skýrslu stjórnar segir að stöðugildin hafi verið 22 bæði árin, en í skýringu um starfsmannamál eru þau sögð hafa verið 20 árið 2024 og 22 árið 2025.