Félagið La Datcha Marine X Ltd., skráð á Seychelles-eyjum, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Félagið á og rekur lúxussnekkjuna La Datcha, sem í mars var meinað leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla við Rússa. Krafa félagsins fyrir dómi er að sú ákvörðun verði felld úr gildi, að sögn Gunnars Sturlusonar, lögmanns félagsins.
Hluti af þvingunaraðgerðum gegn Rússum
Sigla átti snekkjunni til hafnar á Akureyri 21. mars. Snekkjan siglir í dag undir fána Panama og var á leið til Akureyrar frá Istanbúl með 26 manns um borð. Skipið sigldi hins vegar undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022, og af þeim sökum ákvað Landhelgisgæslan að meina því að koma í höfn. Það var gert á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás þeirra í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa framfylgt.
Snekkjan lónaði í Eyjafirði í um viku en þá fengu skipverjar leyfi til að taka olíu og sækja vistir í landi undir eftirliti lögreglu. Skipinu var loks siglt úr Eyjafirði 30. mars en nóttina eftir, rétt eftir að það fór út úr landhelginni, kom upp vélarbilun. Það varð til þess að snekkjan fékk leyfi til að sigla inn í landhelgina aftur og fara til Hólmavíkur þar sem vélin var löguð daginn eftir og snekkjunni var loks siglt burt frá landinu 31. mars.
Í eigu auðjöfurs sem gagnrýndi Pútín
La Datcha er í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov, sem reyndar er með kýpverskt ríkisfang í dag. Hann er stofnandi Tinkoff-netbankans sem er einn stærsti banki Rússlands og þjónustar um 20 milljónir manna.
Tinkov seldi bankann stuttu eftir að hann gagnrýndi Vladímír Pútín Rússlandsforseta og innrásina í Úkraínu opinberlega. Tinkov sagði á sínum tíma að hann hefði einungis fengið um 3% af raunvirði bankans en stjórnvöld í Rússlandi hefðu beitt hann hörðum refsingum vegna afstöðu sinnar.
Tekið fyrir 1. júní
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 1. júní. Gunnar Sturluson lögmaður segir að þar verði tekist á um lögmæti reglnanna sem bjuggu að baki ákvörðuninni um að meina snekkjunni að koma til hafnar.
Þetta er ekki fyrsta dómsmálið sem rís vegna þvingunaraðgerða íslenska stjórnvalda gegn Rússum. Skemmst er að minnast aðgerða gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri og dómsmála sem fyrirtækið og stjórnarformaður þess höfðuðu í kjölfarið. Vélfag tapaði málinu fyrir héraðsdómi, fékk því áfrýjað beint til Hæstaréttar og þar verður það flutt 3. júní.