Vel á níunda þúsund glös af ólöglegum peptíðum hafa verið gerð upptæk hér á landi að undanförnu. Mikil sprenging varð í innflutningi á slíkum efnum í fyrra.
Sprenging í innflutningi á peptíðum í október í fyrra
Frá ársbyrjun 2025 hefur Tollgæslan lagt hald á rúmlega 8.500 glös af peptíðum sem reynt var að smygla hingað til lands og yfir 30 Retatrutide-penna. Retatrutide, eða Reta, er þyngdarstjórnunarlyf sem hefur að undanförnu gengið kaupum og sölum á netinu og samfélagsmiðlum, þrátt fyrir að lyfið sé ekki komið á markað.
„Þróunin jókst mikið síðastliðinn október á síðasta ári og hefur haldið áfram síðan. Fólk er að panta í auknum mæli á netinu peptíðin á þessum síðum sem fólk getur fundið,“ segir Ársæll Ársælsson, yfirtollvörður hjá Tollgæslunni.
„Og magnið per einstakling er að aukast, allt frá tíu einingum upp í 150, 250 einingar.“
Ekkert vitað um innihaldið
Yfir 90% peptíðanna koma hingað til lands í gegnum Póstinn eða með hraðsendingum í litlum glærum glösum. Ársæll segir engar upplýsingar liggja fyrir um innihald glasanna, sem merkt eru með ýmsum skammstöfunum.
„Hér er ein sending og innihaldslýsingar eru R30. Hér er RT30. Við vitum bara eiginlega ekkert meira hvað sendingin inniheldur.“
Tollgæslan sendi fjölda sýnishorna til efnagreiningar til Europol í Hollandi í apríl. Von er á niðurstöðum á næstu vikum.
„Við erum farin að þekkja umbúðirnar og lýsingarnar frá seljanda, þannig að það hefur hjálpað okkur mikið. Þannig að við höfum lagt aukna áherslu á að stöðva þetta.“
Innflutningur á slíkum efnum er brot á lyfjalögum og getur farið svo að málin séu kærð til lögreglu, segir Ársæll. Hann segir fræðslu mikilvæga.
„Ég myndi hugsa mig tvisvar um áður en ég myndi kaupa svona á netinu og stinga í mína æð.“