„Ég er bara ein­hver skel af sjálfri mér núna“ - Vísir

„Ég er bara ein­hver skel af sjálfri mér núna“ - Vísir

„Ég er bara ein­hver skel af sjálfri mér núna“ - Vísir

Hún er ein sex grindvískra ungmenna sem Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir ræddi við í tengslum við MA-ritgerð sína í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst. Ritgerðin ber heitið „Grindavík er og verður alltaf heim“ og fjallar um upplifun og reynslu grindvískra ungmenna af rýmingu og brottflutningi.

Viðmælendurnir voru á aldrinum 21 til 24 ára, fimm konur og einn karlmaður. Fimm þeirra höfðu búið í Grindavík alla ævi en einn hafði flutt þaðan á grunnskólaaldri og síðar aftur til bæjarins.

Markmið Köthu var að skoða hvaða áhrif rýmingin hafði á félagslega stöðu og tengslanet ungmennanna.

Persónulega tengingin var drifkraftur

Í samtali við Vísi segir Katha að jarðhræringarnar í Grindavík og rýming bæjarins hafi haft mikil áhrif á hana persónulega.

Katha hafði ákveðna persónulega tengingu við viðfangsefnið.Aðsend

„Það fylgdi mikil óvissa og hræðsla í kjölfarið, sérstaklega þegar kom að framtíð fjölskyldunnar minnar. Ég hef alla tíð verið mikið í Grindavík hjá fjölskyldunni minni og þá sérstaklega afa og ömmu og síðustu ár hjá afa eftir að amma dó. Þegar atburðirnir á Reykjanesi hófust var það mikið áfall fyrir mig að geta ekki lengur farið í heimsóknir til nánustu fjölskyldu eins og ég var vön.

Þessi persónulega tenging varð því ákveðinn drifkraftur í rannsókninni og átti afi minn, sem dó í nóvember á síðasta ári, mikinn þátt í ákvörðun minni um að gera rannsókn um þennan tiltekna atburð. Mig langaði til þess að heyra reynslusögur fólksins í Grindavík af því að þurfa að rýma heimabæ sinn. 

Ég vildi gefa Grindvíkingum tækifæri til að segja sína sögu á sínum eigin forsendum og koma sinni reynslu og upplifun af áfallinu á framfæri.

Katha segir ástæðuna fyrir því að hún valdi sérstaklega ungmenni á aldrinum 18–25 ára meðal annars vera þá að hún var sjálf á þessu aldursbili.

„Á sama tíma fannst mér vanta meiri umfjöllun um upplifun ungs fólks af þessum atburðum. Mér fannst mikilvægt að gefa þessum hópi rödd og fá fólk til að skilja betur hvernig rýmingin og langvarandi óvissan hafði áhrif á líf þeirra. Markmiðið var ekki að alhæfa um öll grindvísk ungmenni heldur að fá dýpri innsýn í reynslu þeirra og skilja betur áhrifin á félagslega stöðu, daglegt líf og framtíðarsýn. Mér fannst þessi hópur eiga það til að gleymast í umræðunni, sérstaklega þegar um stór áföll og hamfarir er að ræða.“

Katha kveðst hafa vitað fyrirfram að rýmingin hefði haft djúpstæð áhrif á grindvísk ungmenni.

„Það sem ég áttaði mig hins vegar ekki á var hversu mikil áhrif hún hafði á félagsleg tengsl þeirra og sjálfsmynd.“

Það sem kom henni mest á óvart var forðun viðmælenda frá öðrum Grindvíkingum og persónubreytingarnar sem þeir lýstu.

„Sum þeirra voru orðin feimin við að heilsa fólki sem þau þekktu vel fyrir rýmingu Grindavíkurbæjar. Þau voru orðin neikvæðari, öryggistilfinning þeirra hafði raskast og andleg líðan farið versnandi. 

Þetta sýndi mér hvað áhrifin af svona atburðum geta verið víðtæk og náð langt út fyrir sjálfa rýminguna.

Afleiðingarnar rista dýpra en margir halda

Eitt það sterkasta sem kemur fram í rannsókninni er að mörg ungmennanna upplifa sig breytt eftir rýminguna. Sum tala jafnvel um að hafa „týnt sjálfum sér“.

„Mér finnst þessi niðurstaða sýna okkur að heimili er miklu meira en bara húsnæði. Þegar ungmennin misstu heimili sitt, samfélagið og daglegt líf þeirra raskaðist misstu þau stóran hluta af sjálfsmynd sinni,“ segir Katha.

„Rýmingin varð til þess að margt af því sem ungmennin þekktu og treystu á hvarf nánast á einni nóttu – fólkið, staðirnir, dagleg rútína og jafnvel framtíðarsýnin. Þau höfðu líka mjög lítil tök á því að stjórna því sem var að gerast og ákvarðanir voru teknar fyrir þau.

Fyrir ungt fólk, sem er á mikilvægu mótunarskeiði í lífinu, getur svona rof haft mikil áhrif á sjálfsmynd og öryggistilfinningu. Þess vegna fannst mér sérstaklega mikilvægt að taka því alvarlega þegar ungmenni segja að þau hafi „týnt sjálfum sér“. Þetta snýst ekki bara um að missa húsnæði heldur einnig missi á samfélagi, tengslum, rútínu og tilfinningu fyrir því hver maður er. Endurreisnin getur því ekki bara falist í því að útvega nýtt húsnæði. Það þarf líka að gefa fólki, og sérstaklega ungmennum, tækifæri til að endurbyggja tengsl, öryggi og tilfinninguna fyrir því að tilheyra.“

Katha telur brýnt að stjórnvöld, sveitarfélög og þau sem sinna áfallastuðningi líti á rýminguna sem meira en tímabundinn flutning frá heimili.

„Fyrir mörg ungmenni felur hún í sér rof á öryggi, félagslegum tengslum, daglegum venjum og jafnvel sjálfsmynd. 

Þess vegna þarf andlegur stuðningur að vera aðgengilegur og vara lengur en fyrstu dagana eða vikurnar eftir atburðinn.

Við þurfum að spyrja um meira en hvort fólk sé komið með öruggt húsnæði, líka hvernig því líður og hvort það hafi náð að endurheimta tengsl, stöðugleika og tilfinninguna fyrir því að tilheyra. Endurreisn eftir rýmingu snýst ekki bara um að byggja upp hús, heldur líka um að byggja upp fólk og samfélag á ný.“

„Þetta er bara sjálfið mitt eiginlega“

Í frásögnum ungmennanna birtist sterk mynd af samfélagi þar sem daglegt líf, sjálfsmynd, fjölskylda, vinir og staðurinn sjálfur voru nátengd.

Allir viðmælendurnir lýstu sterkum tengslum við Grindavík og töluðu um bæinn sem heim, jafnvel eftir að hafa þurft að flytja þaðan. Í frásögnum þeirra skiptu ekki aðeins húsin máli heldur göturnar, venjurnar, fólkið og tilfinningin fyrir því að tilheyra litlu samfélagi þar sem flestir þekktu eða könnuðust við flesta.

Ein úr hópnum, sem kölluð er Elva, lýsir Grindavík sem stórum hluta af sjálfri sér. Hún átti vini sína úr grunnskólanum, hitti þá reglulega og nefnir meðal annars hversdagslegar ferðir á Papas þar sem vinahópurinn gat hist, spilað og fengið sér bjór.

„Þetta var algjört frelsi. Maður veit alveg að ef það gerist eitthvað þá er næsti maður að fara að passa þig.“

Ari lýsir Grindavík sem „litlu Íslandi“. Hann þekkti ekki endilega alla vel en kannaðist við nánast alla. Nína segir fjölskyldu og vini hafa verið stóran hluta af daglegu lífi sínu og fólkið í bænum fólk sem hún hafði þekkt alla ævi.

Emma lýsir Grindavík sem þeim stað þar sem hún upplifði mest öryggi.

Mér finnst Grindavík svolítið vera bara mitt heimili; staðurinn sem maður er öruggastur á og svona mest heim.

Lára, sem hafði um tíma búið annars staðar, lýsir því hversu auðvelt hafi verið að verða hluti af samfélaginu á ný. Hún segir að „opið hús“ hafi verið hjá Grindvíkingum og hjálpsemin mikil.

Körfuboltinn hélt samfélaginu saman

Eftir rýminguna fundu ungmennin nýja staði til að halda gömlu tengslunum lifandi. Þar skiptu körfuboltaleikir Grindavíkur sérstaklega miklu máli.

Sóley segir fólk hafa lagt mikið á sig til að mæta á leiki, jafnvel þegar ferðin tók rúman klukkutíma.

„Það hjálpaði rosalega mikið að hittast á körfuboltaleikjum. Við vorum rosalega dugleg þó að það væri svona langt í burtu.“

Nína segir að fyrst eftir rýminguna hafi hópurinn hist mikið um helgar en síðan hafi körfuboltaleikirnir tekið við sem sameiginlegur vettvangur. Fyrstu mánuðina hafi „bara allir nánast“ mætt.

„Bara einhvern veginn gleyma öllu öðru, bara horfa á leik og bara hitta alla. Maður fær alveg gæsahúð að hugsa út í það.“

Ari hafði lítið mætt á leiki áður en bærinn var rýmdur en fór að mæta mun meira eftir á. Hann segir fleiri Grindvíkinga almennt hafa byrjað að mæta og leikirnir orðið staður þar sem fólk gat hist og spjallað.

Fjölskyldan reyndist ekki síður mikilvæg. Lára segir fjölskylduna hafa verið bestu vini sína og telur reynsluna hafa verið „hundrað sinnum erfiðari“ án systkina sinna og foreldra. Emma segir nærveru foreldra sinna hafa verið eitt af því sem hélt henni gangandi.

Viðmælendurnir töluðu einnig um hversu mikils virði stuðningur annarra Íslendinga var. Elva segir gjafir og annan stuðning hafa verið „ógeðslega dýrmætan“ þegar óvíst var hvenær fólk fengi að fara heim að sækja eigur.

Allt í móðu

Þótt rýmingarkvöldið sé rauður þráður í frásögnunum byrjaði álagið ekki 10. nóvember og því lauk ekki þegar ungmennin voru komin úr bænum.

Þau lýsa langvarandi óvissu vegna jarðskjálfta fyrir rýminguna og síðan áframhaldandi óöryggi, flutningum og bið eftir svörum.

Elva var ein heima síðdegis daginn sem bærinn var rýmdur og hafði ekki bílpróf.

Ég sat á gólfinu hágrátandi og skíthrædd. Ég grenjaði held ég bara allan daginn alla daga fyrstu þrjár vikurnar.

Hún segir fyrstu vikurnar hafa einkennst af svefnleysi og að hún hafi verið „ónýt“ fyrstu mánuðina. Hún leggur áherslu á að reynslan hafi ekki aðeins snúist um einn dag. Jarðskjálftarnir og óöryggið höfðu staðið yfir árum saman.

Sóley segist hafa verið orðin vön jarðskjálftum en dagurinn sem rýmt var hafi verið öðruvísi en allt sem hún hafði áður upplifað. Eftir rýminguna varð hún hrædd við skjálfta og lýsir fyrstu dögunum sem móðu.

Nína segir daginn hafa verið óraunverulegan. Þegar hún las að ekki væri hægt að útiloka kviku undir Grindavík hafi hún hugsað: „Holy shit.“

„Það var svo mikið panik, mjög óraunverulegt. Maður var bara eitthvað: Hvað er ég að gera? Hvað er næst?“

Ari var á leið aftur til Grindavíkur þegar vegurinn fór í sundur skammt fyrir framan bílinn. Hann segir næstu mánuði hafa einkennst af flutningum og því að búa lengi í ferðatösku.

Emma og Lára leggja báðar áherslu á valdaleysið. Emma segir ákvarðanirnar hafa verið teknar frá þeim og að fólk hafi einfaldlega verið „tekið og hent einhverju“.

Lára líkir upplifuninni við að það hafi kviknað í heimili hennar á einu kvöldi.

Það var svo óþægilegt að vera með enga stjórn. Maður bjó bara smá í ferðatösku því maður þorði heldur ekki að taka upp.

Týndu sjálfum sér eftir rýminguna

Persónubreyting eftir rýmingu er eitt af meginþemunum í rannsókninni. Allir sex viðmælendurnir töldu sig hafa breyst.

Lára segir öryggistilfinningu sína hafa raskast „hundrað prósent“. Hún hafi þó jafnframt lært að meta tímann betur og sjá það sem sé fallegt og mikilvægt.

Hjá Elvu var breytingin dekkri. Hún lýsir sér fyrir rýminguna sem opinni, jákvæðri og lífsglaðri manneskju en segist nú forðast samskipti og hafa misst sjálfstraustið.

„Mér finnst bara sjálfið mitt farið. Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna.“

Sóley segir kvíða, sem hún hafði áður glímt við, hafa aukist mikið. Það hafi verið mikil breyting að fara úr litlu bæjarfélagi yfir á höfuðborgarsvæðið og ýmislegt orðið yfirþyrmandi.

Nína lýsir sér sem glaðlyndri og félagslyndri fyrir rýminguna en segist nú mun hlédrægari og ekki jafn hress. Hún segist hafa týnt sjálfri sér og ekki lengur vita hver hún sé.

Emma sker sig að nokkru leyti úr. Hún hefur fundið fyrir einmanaleika og saknar þess hversu auðvelt var að hitta fólk í Grindavík, en hefur markvisst reynt að mynda ný tengsl.

Ari segir jarðskjálftahræðsluna sitja eftir.

Mér líður eins og ég eigi til að finna fyrir skjálftum sem eru ekki.

Í niðurstöðunum kemur fram að fimm af sex viðmælendum hafi orðið hlédrægari eftir rýminguna. Ungmennin lýsa rofi á sjálfsmynd, auknum kvíða og þeirri tilfinningu að vera ekki lengur sömu manneskjur og áður.

Breyttur veruleiki

Samheldnin sem kviknaði strax eftir rýminguna kom ekki í veg fyrir að dagleg tengsl rofnuðu smám saman þegar fólk dreifðist um landið og jafnvel út fyrir landsteinana.

Elva segir vinahópinn áður hafa hist stöðugt, farið á Papas, í bíó eða gert eitthvað saman. Nú búi allir hver á sínum stað. Hún lýsir jafnvel því að hitta fólk sem hún talaði við á hverjum degi í Grindavík en þora ekki að heilsa því.

„Mér finnst ég búin að missa tengslin bara alveg við ógeðslega marga sem er ógeðslega sorglegt. Þetta er fólk sem ég ólst upp með.“

Sóley var vön að hitta vinkonu sína daglega en eftir rýminguna urðu fundirnir mun sjaldgæfari.

Þetta varð aldrei eins aftur.

Emma segir félagslífið hafa breyst mikið og meira „vesen“ sé að hittast. Reynslan hafi þó líka sýnt henni betur hverjir nánustu vinir hennar séu.

Nína segir félagslíf sitt nú „eiginlega bara ekki neitt“ og Ari segir tengsl við vini hafa minnkað töluvert vegna þess hversu dreifður hópurinn sé orðinn.

Lára lýsir því að áður hafi hún séð vini og fjölskylduvini reglulega án þess að skipuleggja það sérstaklega. Nú þurfi að halda sambandinu meðvituðu.

Katha bendir á að fyrir rýminguna hafi dagleg samskipti sjálfkrafa viðhaldið tengslunum. Fólk bankaði upp á, rakst hvert á annað eða hittist á stöðum eins og Papas. Eftir rýminguna hurfu þessir reglubundnu vettvangar og samskiptin sem áður þurfti varla að hafa fyrir urðu eitthvað sem þurfti að skipuleggja.

Raddir ungmenna þurfi að heyrast

Katha tekur fram að rannsóknin sé eigindleg og byggi aðeins á sex viðtölum og því sé markmiðið ekki að alhæfa um öll grindvísk ungmenni. Mikilvægi hennar felist meðal annars í því að raddir ungmenna fái að heyrast í stórum hamförum, enda sé hætta á að þessi hópur gleymist í umræðunni.

Heildarmyndin sem dregin er upp er tvíþætt. Strax eftir rýminguna varð samheldnin sterk en með tímanum fór daglegt tengslanet að veikjast vegna dreifðrar búsetu, fjarlægðar, kvíða, einmanaleika og breyttra lífsaðstæðna.

Í ritgerðinni er bent á mikilvægi stöðugs upplýsingaflæðis og ráðgjafar þar sem sérstaklega sé tekið mið af ungmennum. Einnig þurfi að styðja markvisst við sameiginleg rými sem viðhalda tengslum þrátt fyrir að fólk búi á ólíkum stöðum, til dæmis íþróttaviðburði og skipulagða hópasamveru fyrir ungmenni. Þá þurfi að sérsníða sálfélagsleg úrræði að þeim sem upplifa rof á sjálfsmynd og félagslífi.

Þrátt fyrir allt sem hefur breyst er eitt atriði sameiginlegt í frásögnum viðmælendanna sex: Grindavík er áfram heim. Staðurinn, fólkið og lífið sem þar var eru ekki einfaldlega það sem þau skildu eftir þegar bærinn var rýmdur. Fyrir mörg þeirra er Grindavík hluti af því hver þau eru.

#bara #einhver #mér #sjálfri #skel


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924387d/-eg-er-bara-einhver-skel-af-sjalfri-mer-nuna-

📰 Aðrar fréttir

Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 1
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 2
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
📅 08.10.2026 👁️ 1
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 4
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 4
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 4
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...