Fólk sem lendir í vandræðum við akstur í erfiðum aðstæðum getur átt von á skertum eða engum bótum frá tryggingafélagi.
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá tryggingafélaginu VÍS, segir fólk sem keyri með eftirvagna í vondu veðri eiga í hættu að fá skerðingu bóta eða jafnvel neitun frá tryggingafélagi hafi opinberar viðvaranir verið verið gefnar út fyrir ferðasvæðið eða ef vindstyrkur fer yfir 24,5 metra á sekúndu.
Gular viðvaranir hafa verið í gildi á Norðvesturlandi og umferðarteppur mynduðust á Hellisheiði og Holtavörðuheiði um helgina þegar bílar lentu utan vegar með hjólhýsi í eftirdragi sem tóku á sig vind.
„Því miður eru allt of mörg dæmi þess á hverju einasta ári að við fáum tilkynningar um tjón sem verður á eftirvögnum sem hafa fokið þegar verið er að fara með vagninn milli staða,“ segir Sigrún.
Fólk átti sig oft ekki á því hvað eftirvagnar taki á sig mikinn vind og hvað það sé auðvelt að missa stjórn á ökutæki fjúki eftirvagninn.
Hún hvetur fólk til að kynna sé aðstæður áður en það heldur í ferðalag með eftirvagn. Það geti margborgað sig að bíða með ferðalög eða jafnvel skilja vagninn eftir séu aðstæður slæmar.