Seðlabankinn er að kæla hagkerfið, í von um að ná niður verðbólgu. Það gerir hann með því að halda uppi háu vaxtastigi, sem bitnar á skuldugum heimilum og fyrirtækjum.
Það vinnur hins vegar ekki á erlendum verðhækkunum, né á verðbólgu vegna hækkunar á húsnæðiskostnaði, né á eftirspurnarþenslu skuldlítilla og tekjuhárra einstaklinga og fyrirtækja, né á þenslu vegna einkaneyslu mikils fjölda ferðamanna. Þessi úrræði Seðlabankans hafa enda sýnt sig að skila einungis takmörkuðum árangri og eru að auki einstaklega óréttlát í dreifingu byrða.
En aðferð Seðlabankans kælir vissulega efnahagslífið, hún slekkur næstum á hagvextinum og eykur atvinnuleysi. Það er kostnaðurinn við beitingu hávaxtastefnunnar.
Nýlega birti greiningardeild Landbanka Íslands hagspá sína fyrir árin 2026 til 2028 þar sem gert er ráð fyrir hagvexti upp á einungis 1,6 til 1,8% á næstu þremur árum. Það er minna en áætlaður vöxtur fólksfjöldans í landinu, skv. spá Hagstofunnar. Hagvöxtur á mann verður þannig neikvæður.
Þetta þýðir í reynd, að hagkerfið er komið í stöðnun sem búast má við að haldi áfram a.m.k. til 2028. Þetta má sjá á myndinni hér að neðan, sem sýnir hagvöxt á mann.
Mynd: Stefán Ólafsson
Það eru afleit tíðindi, sem vonandi rætast ekki. En þetta er kostnaðurinn af beitingu þessa úrræðis Seðlabankans sem við stöndum frammi fyrir. Og það án þess að góður árangur hafi náðst í lækkun verðbólgunnar og tryggingu stöðugleika. Þetta er klárlega leið sem borgar sig ekki.
Ég hef í mörgum greinum á síðustu mánuðum lagt til að ríkisstjórnin grípi til beinna aðgerða gegn verðbólgunni, í anda hagstjórnarstefnu Keynes lávarðar. Það er hægt að gera með beinum og öflugum inngripum í húsnæðismarkað, fjármálamarkað og víðar, og með markvissri beitingu fjármálastefnu og skatta til að tempra eftirspurnarþrýsting þeirra sem raunverulega spenna upp verðbólguna (sjá t.d. „Verðbólgan: Betri leið er í boði“). Sjá einnig ítarlegar tillögur Eflingar um leigubremsu, sem eru vel til þess fallnar að slá hratt á verðbólguna.
Ríkisstjórn sem stendur frammi fyrir stöðnun í efnahagslífinu í þrjú ár í viðbót við þau tvö sem þegar eru töpuð er ekki í góðri stöðu. Að óbreyttu mun allur stjórnartími ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur verða tímabil stöðnunar, ef spá Landsbankans gengur eftir. Að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári mun ekki leggja mikið til lækkunar verðbólgunnar. Miklu meira þarf til af annars konar aðgerðum.
Ef ríkisstjórnin skyldi ná góðum árangri í að auka hagvöxt á mann með nýkynntri atvinnustefnu, þá kæmi Seðlabankinn til baka og segði of mikinn þrótt og eftirspurnarþenslu komna í efnahagslífið – sem kalli aftur á hærri vexti og meiri kólnun. Stíga þurfi á bremsuna. Þetta er öngstrætið sem við erum í, með því að festa efnahagslífið í hávaxtastefnu Seðlabankans.
Ég vona að ríkisstjórnin hafi nægilega mikla sjálfsbjargarviðleitni til að hverfa frá afskiptaleysisstefnu markaðshyggjunnar og stóla á næstunni minna á hávaxtastefnu Seðlabankans. Við þurfum að geta haft hagvöxt án þess að Seðlabankinn stígi á bremsuna. Það kallar á allt önnur úrræði en hávaxtastefnu og hallalaus fjárlög.
Tími er kominn á grundvallar breytingar í hagstjórninni, ef takast á að afstýra yfirvofandi stöðnun íslensks efnahagslífs til 2028.
Stefán Ólafsson er prófessor emeritus við HÍ og starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu.
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...
Xi Jinping, forseti Kína, kom til Bandaríkjanna í gær. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu síðar í dag.Það vakti athygli að ...
HomeTenerifeDrunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife 24-09-...
AP fréttaveitan hefur eftir Marie Roseline Belizaire, yfirmanni neyðarviðbragða í Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO), að enn sé ekki búi...
Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heim...
Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð ...
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Málið kom á borð ákæranda þann 14. september og er hans hlutver...
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa sinnt nokkrum fjölda útkalla vegna fjúkandi lausamuna á Hvolsvelli og Hellu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrú...
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Vegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi haf...
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent Noregsbanki hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í morgun til að vinna gegn verðbólgu. Bankinn seg...
Donald Trump Bandaríkjaforseti þarf að veita fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aftur aðgang að Hvíta húsinu. Þetta er niðurstaða dómstóls í Washing...
Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún ...
Þeir sem vilja taka tónlistina með sér heim þurfa hins vegar að eiga geislaspilara, því platan verður fyrst um sinn ekki aðgengileg á netinu. Það er g...
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í ...
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Áætlaður kostnaður við að fylla upp í þessi tíu stöðugildi yrði þrjú til fjögur hundruð milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri gr...
Gular viðvaranir taka gildi ein af annarri víða á landinu í dag og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands að hyggilegt sé að tryggja lausamuni. Þá ...
VG greinir frá og ræðir við Alexander Greaker, annan verjandanna. Hann og Daniel Storrvik munu reyna að fá Høiby sýknaðan í febrúar þegar málin verða ...
Úkraínumenn hafa áhyggjur af því að Rússar ætli sér að gera enn og aftur árásir á orkuver, dreifikerfi og hita- og vatnsveitur Úkraínu í vetur. Þessar...
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og sjö aðrir þingmenn reyna nú aftur að afnema erfðafjárskatt. Þau v...
Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritza...
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
„Sæll, ástin mín,“ sagði Mary, þegar Patrick steig inn um dyrnar. „Sæl, ástin,“ svarað hann á móti. Hún blandaði handa honum viskí. Hann þambaði það í...
Rekstrartekjur félagsins voru rúmar sex hundruð milljónir og rekstrargjöld 143 milljónir. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn 340 milljónir sa...
Grænlandssamningurinn er birtingarmynd nýs veruleika í alþjóðamálum. Fyrir Grænland skapar hann ró, að minnsta kosti um tíma. Hann er jafnframt sigur ...
„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann...
Fósturerfðaskimunin, NIPT, verður í boði fyrir allar konur að lokinni 12 vikna skoðun. Í tólf vikna skoðun er meðgöngulengd metin og fjöldi fóstra ath...
Það dregur víða úr vindi seinnipartinn en gengur þá í norðaustan, fimmtán til 23 metrar á sekúndu á Vestfjörðum. Hiti fimm til ellefu stig. „Suðvesta...
Um er að ræða miðlana CNN, MS NOW og Politico. Dómstóllinn gaf út tímabundinn lögbannsúrskurð sem þýðir að miðlarnir þrír skulu fá aðgangsheimildir sí...
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt. Nokkrir voru stöðvaðir vegna hr...
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar, að því gefnu að skilgreindar öryggisfor...