Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri og meðeigandi hjá Deloitte, segir engan hafa getað séð fyrir hvernig gervigreind hefur þróast undanfarið og engan geta sagt til um hvernig hún muni þróast áfram.
Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar sumra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindar. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og tækni tengdri henni orðnar að mikilvægum drifkrafti í hagvexti í Bandaríkjunum og Kína og þar með heiminum öllum.
„En ég held að við þurfum aðeins að staldra við núna þegar við sjáum bæði forseta Bandaríkjanna og forseta Kína mæla sér mót í vikunni til þess að ræða þessar áskoranir,“ segir Björgvin. „Á sama tíma og helstu tæknifyrirtæki og gervigreindarfyrirtæki eru öll að segja: „Heyrðu, nú þurfum við að staldra við“ og einhvern veginn allir sammála um það að ef of geyst er farið gætum við unnið kapphlaup sem enginn vill vinna.“
Kapphlaup sem getur leitt okkur til glötunar
Björgvin bendir á að fyrir ári síðan hafi Bandaríkin sagst ætla að hlaupa eins hratt og þau gætu í gervigreindarkapphlaupinu en nú sé ekki endilega hagur Bandaríkjanna að „vinna kapphlaupið ef það getur svo leitt okkur til samfélagslegrar glötunar.“
Björgvin ber þróun gervigreindar og mögulegar hömlur sem hægt væri að setja á hana við kjarnorku. „Þá náðu menn samkomulagi um að hætta kjarnorkutilraunum ofanjarðar og við það var staðið um áratugaskeið af því það var hægt að fylgjast með því,“ segir hann.
„Nú erum við á svolítið erfiðum stað varðandi gervigreindina af því það er ekki endilega svo augljóst hvernig við getum hermt upp á þessa valdhafa hvort þeir fylgi reglunum sem þeir kannski setja sér. Þannig að við getum haft ákveðnar væntingar um að stjórnvöld, í Bandaríkjunum og Kína sérstaklega, sammælist um einhverja ákveðna vegferð og ákveðin prinsipp en það gæti verið snúið að fylgjast með því hvort það sé raunverulega gert.“
Snýst um að dempa jaðarlíkön
Björgvin segir hömlurnar sem séu ræddar í tengslum við þróun gervigreindar aðallega snúast um jaðarþróun. „Þá erum við ekki að tala um að dempa endilega þau áhrif sem við gætum séð jákvæð af gervigreind næstu árin heldur þessi jaðarlíkön og jaðarþróun sem eru vísbendingar um að tæknin sé fær um að taka stærri skref og hraðar en við gerðum okkur grein fyrir.“
Björgvin Ingi Ólafsson var gestur í Silfrinu í kvöld, ásamt Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi og náttúruverndarsinna, og Þóru Anrónsdóttur, forstöðumanni samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þau ræddu gervigreind í samhengi við Ísland og íslenska náttúru.