Þingmaður í ísraelska Likud flokknum segir alþjóðalög ekki binda Ísrael. Þau eigi ekki við um gyðinga sem séu hin útvalda þjóð.Hanoch Milwidsky, þingmaður í Likud flokki forsætisráðherrans Benjamíns Netanyahu, segir að lög sem binda aðrar þjóðir eigi ekki við um Ísraelsmenn. Gyðingar séu útvaldir.„Við erum ekki eins og allir aðrir, og þess vegna gilda ekki um okkur öll þau lög sem gilda um alla aðra,“ segir Milwidsky í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlum.
Ísraelskur þingmaður segir alþjóðalög ekki gilda um gyðinga – „Við erum ekki eins og allir aðrir“