Bandarísku fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News and NBC hafa sammælst um að flytja ekki sjónvarpsfréttir frá Hvíta húsinu í mótmælaskyni eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að meina fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW aðgang að Hvíta húsinu.
Trump tilkynnti ákvörðun sína sem tók gildi tafarlaust á föstudaginn.
Fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News, NBC og CNN skiptast á að sjá um sjónvarpsútsendingar frá viðburðum Hvíta hússins. CNN átti að sjá um útsendingu á mánudaginn en gat það ekki vegna banns Trumps. Í samstöðu með CNN ætla hinir fjölmiðlarnir að hætta að senda út frá Hvíta húsinu.
Í sameiginlegri yfirlýsingu skrifuðu fréttastöðvarnar fimm: „Almenningur hefur brýnna hagsmuna að gæta af því að fá nákvæmar, óháðar upplýsingar um stjórnvöld sín. Engin ríkisstjórn ætti að takmarka aðgang fréttastofu vegna þess að hún er ósammála fréttaflutningi hennar.“
Þrátt fyrir að fjölmiðlarnir hafi sagst ætla að stöðva sjónvarpsumfjöllun um Trump halda þeir áfram að flytja fréttir í blöðum, útvarpi og á netinu.
Fjölmiðlarnir Washington Post, New York Times og Associated Press tilkynntu að þeir sýndu fjölmiðlunum sem fengu á sig bann samstöðu með því að fresta birtingu á ljósmyndum sem voru teknar af ljósmyndurum Hvíta hússins í dag.