Icelandair segir frestun verkfalls ekki draga úr þeim skaða sem verkfallsboðun flugvirkja hafi þegar valdið starfsemi Icelandair, ferðaþjónustunnar, íslensku atvinnulífi og samfélaginu í heild, heldur framlengja óvissutímabilið og auka tjón allra enn frekar.
Ef trú sé á að samtalið geti leitt til niðurstöðu telji Icelandair eðlilegast að Flugvirkjafélag Íslands dragi verkfallsboðunina til baka, frekar en að fresta henni, og að viðræður haldi áfram af fullum krafti.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Icelandair.
„Vilji Icelandair til að semja er sömuleiðis til staðar“
Icelandair segist fagna afstöðu Flugvirkjafélags Íslands til þess að vilja halda samtalinu áfram, með það að markmiði að ná samningi.
„Vilji Icelandair til að semja er sömuleiðis til staðar, en félagið getur ekki fallist á frestun verkfalls um eina viku,“ segir í yfirlýsingunni.
Verkfallsboðunin hafi þegar valdið verulegum skaða fyrir starfsemi Icelandair, ferðaþjónustuna, íslenskt atvinnulíf og samfélagið í heild. Félagið hafi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að lágmarka tjón og auka fyrirsjáanleika fyrir farþega.
Tæplega þrjúþúsund farþegar hafi þegar fært flug sitt yfir á aðrar dagsetningar, og merki séu um hægari bókanir, afbókanir og að farþegar færi sig yfir til annarra flugfélaga. Það sama eigi við um íslenska ferðaþjónustu þar sem hægt hefur á bókunum og afbókanir átt sér stað.
„Frestun verkfalls myndi ekki draga úr þessum skaða heldur framlengja óvissutímabilið og auka tjón allra aðila enn frekar. Tjónið sem þegar er orðið næst ekki til baka og frestun um viku myndi setja sömu atburðarás í gang fyrir það tímabil og valda enn frekara tjóni.“
Flugvirkjar hafi getað frestað verkfalli einhliða á laugardag
Icelandair telur vert að nefna að samkvæmt lögum sé ekki hægt að fresta boðuðu verkfalli einhliða með skemmri en þriggja daga fyrirvara.
„Þau lög voru sett með þeim rökum að almennt væri ekki hægt að afstýra tjóni sem boðuð vinnustöðvun getur valdið með skemmri fyrirvara. FVFÍ hafði möguleika á að fresta verkfallinu einhliða á laugardag,“ segir í yfirlýsingunni.
Af þeim sökum telji Icelandair því eðlilegast, ef trú sé á að samtalið geti leitt til niðurstöðu, að Flugvirkjafélag Íslands dragi verkfallsboðunina til baka frekar en að fresta henni og að viðræður haldi áfram af fullum krafti.
„Icelandair lagði þannig skriflega til í morgun við FVFÍ að aðilar myndu hittast í dag með það að markmiði að ná samningi, en af slíkum fundi hefur ekki orðið.“