Um þrjú þúsund farþegar hafa breytt flugferðum sínum vegna ótímabundins verkfalls flugvirkja Icelandair sem hefst að óbreyttu á miðnætti annað kvöld. Framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs segir að ekki hafi komið til niðurfellingar á flugferðum enn sem komið er.
„Við stefnum enn þá að því að fljúga öll okkar flug. Þannig að öll flug eru á áætlun og við gerum fastlega ráð fyrir því og vonum að samningsaðilar nái saman þannig að ekki komi til niðurfellinga. Þar af leiðandi er ekki hægt að velja um endurgreiðslu enn sem komið er. Það virkjast fyrst þegar flug er fellt niður,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.
Undir hverjum og einum farþega komið hvað skuli gera
Tómas segir að farþegar geti þó breytt flugferðum sínum á miðvikudag og fimmtudag, án endurgjalds, svo framarlega sem sæti sé laust á sama farrými. Þó þurfi að borga aukalega ef breytingin tekur til sætis á dýrara farrými.
Um 3000 manns hafa breytt flugferðum sínum, eða um 10 % af farþegum þessa tvo daga.
Tómas segir þetta eingöngu gilda fyrir flugferðir með Icelandair, en ekki öðrum flugfélögum sem fyrirtækið er í samstarfi við. Þeir samningar verði hins vegar virkir þegar flug er fellt niður.
„Og leiðbeiningar fyrir farþega. Þetta er dálítið undir hverjum og einum komið. Okkur tekur það sárt að þessi óvissa sé til staðar en hins vegar verður hver og einn að meta stöðuna út frá sínum hagsmunum. En við stefnum að sjálfsögðu að því að öll þessi flug verði flogin og treystum á að það náist saman.“
Flugferðir felldar niður með góðum fyrirvara
Tómas segir að farþegum verði haldið upplýstum og ferðir felldar niður með góðum fyrirvara. Fólk þurfi ekki að halda út á flugvöll í óvissu. Þeir farþegar sem eiga tengiflug í gegnum Keflavíkurflugvöll verði færðir yfir á önnur flugfélög ef til niðurfellingar kemur.
„Ef til langs verkfalls kemur eða mikillar röskunar mun aldrei takast að færa alla farþega á milli. Það verður mikið um niðurfelldar ferðir. En við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að nýta það rými til og frá landinu sem hægt er.“