Utanríkisráðherra Úkraínu, Andrii Sybiha, segir að innrás Rússa í landið hafi leitt til þess að Úkraína sé orðin drónastórveldi. Úkraínumenn séu tilbúnir að deila þekkingu sinni á nýsköpun og framleiðslu dróna með vinaþjóðum, þar á meðal Íslandi. Rætt var við Sybiha í Kastljósþætti kvöldsins.
Fundaði með utanríkisráðherra Íslands um helgina
„Úkraínska þjóðin hefur barist gegn innrás Rússa í meira en fjögur ár og fyrir okkur skiptir það mestu að finna fyrir því að við stöndum ekki ein. Við erum ekki einir og við gjöldum dýrasta verðið,“ segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.
Hann fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, um helgina og segir slíkar heimsóknir og fundi með kollegum mikilvægar og veita hvatningu.
„Við ræddum hagnýt mál um samvinnu þjóðanna. Ég upplýsti utanríkisráðherra um núverandi aðstæður á vígstöðvunum og því miður stigmögnunina fram undan, svo við gerum okkur engar grillur um ógnirnar frá Rússum.“
Rússland standi nú þegar í stríði við Evrópu
Sybiha segir að Evrópa ætti að íhuga að hún eigi ekki í stríði við Rússa, heldur standi Rússland nú þegar í stríði við Evrópu.
„Meira að segja í Póllandi komu upp atvik með rússnesk flugskeyti sem lentu á pólsku landsvæði. Svo að þeir ögra og þreifa fyrir sér og eru raunveruleg tilvistarógn,“ segir Sibiha.
„Og við vitum hvernig á að mæta því. Úkraína hefur öðlast einstaka bardagareynslu og það kom í okkar hlut að sjá fyrir öryggi. Við erum reiðubúnir að deila af reynslu okkar með samstarfsþjóðum okkar og vinum og með Íslandi og meðal annars þess vegna er ég hér.“
„Við urðum í raun að alþjóðlegu drónaveldi“
Viðskipti í tengslum við dróna hafi einnig verið rædd og segir Sybiha Úkraínumenn reiðubúna að legga öryggismálum Íslendinga, öryggi Evrópu og öryggismálum vestur um haf með þekkingu þeirra og færni.
„Dagleg reynsla okkar af stríðsátökum er einn kosta okkar. Og við þróumst enn frekar. Við urðum í raun að alþjóðlegu drónaveldi.“
Þekkingin sem Úkraína hafi aflað sér hafi breytt samskiptum við önnur Evrópuríki.
„Þetta snýst um Evrópu og Úkraínu og nýja tegund af vægi. Það er ekki mögulegt að sjá fyrir sér áframhaldandi þróun Evrópu án Úkraínu. Ég vona svo sannarlega og trúi því að við verðum meðlimur Evrópusambandsins, því fyrir okkur var það einnig sögulegur möguleiki,“ segir hann, og heldur áfram.
„Vegna þessa stríðs höfum við fengið vissu fyrir því í samfélagi okkar að staður okkar í Evrópu og reyndar aðild okkar að ESB er trygging fyrir öryggi okkar.“