Ming Ting Mancel var í dag ákærð fyrir manndráp á þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn. Hún er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns. Eiginmaður hennar og dóttir létust á Edition-hóteli 14. júní 2025.
Farbann yfir Ming Ting Mancel var framlengt á meðan málið er til meðferðar dómstóla, þó ekki lengur en til 28. september. Mancel verður áfram frjáls ferða sinna en hún hefur þegar setið 12 vikur í gæsluvarðahaldi vegna málsins.
Mancel var handtekin á Edition-hótelinu í júní 2025 eftir að starfsmaður hótelsins kom að óhugnanlegum aðstæðum á herbergi fjölskyldunnar.
Málið er án fordæma og rannsókn lögreglu hefur teygt sig til fjölda landa. Mörgum spurningum hefur verið ósvarað um fjölskylduna til þessa, meðal annars hvaða fólk þetta var sem endaði lífið með þessum hætti, á einu dýrasta hóteli Reykjavíkur, sama dag og þau áttu pantað far aftur heim til Írlands, þar sem fjölskyldan hafði búið um nokkurra ára skeið.
Atburðarásin er svo óvenjuleg að rannsakendur og saksóknari í málinu hafa varið löngum tíma í að ákveða hvernig taka eigi á því. Meðal annars þess vegna gekk hin grunaða laus um götur Reykjavíkur í sjö mánuði.