Að því er fram kemur í umfjöllun breska miðilsins The Sun, sem virðist hafa verið sá fyrsti til að birta myndir af nýkvæntu hjónunum, voru átta gestir viðstaddir athöfnina. Þar er einnig sagt frá því að fram undan sé stórfengleg þriggja daga brúðkaupsveisla á Sikiley á Ítalíu.
Callum, sem er er 36 ára, hefur verið talinn líklegur til að leika næsta James Bond. Hann á að hafa beðið söngkonunnar í desember 2024 eftir aðeins eins árs samband, en hún staðfesti söguna í viðtali við breska Vogue í júní síðastliðnum.
Í sínu allra fínasta pússi
Tískuhönnuðurinn Simon Porte Jacquemus, maðurinn á bak við merkið Jacquemus, er talinn hafa hannað að minnsta kosti einn af kjólunum sem Dua, 30 ára, mun klæðast í brúðkaupsveislunni.
Lipa klæddist dragtarkjól frá Schiaparelli couture sem hannaður var af Daniel Roseberry, að því er Vogue greindi frá. Hún paraði klæðnaðinn saman við sams konar hanska og Christian Louboutin-skó, auk hvíts hatts frá Stephen Jones, þar sem hún gekk út úr anddyri hússins hönd í hönd með Turner, sem klæddist dökkbláum jakkafötum og bindi.
Hér að neðan má sjá myndband þar sem söngkonan flytur eitt af þekktari lögum sínum, Training Season, ásamt sinfóníuhljómsveit.