Dróni lenti á Sapóritsjía-kjarnorkuverinu í suðurhluta Úkraínu, sem er á valdi Rússa, að sögn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA).
Stofnunin birti á samfélagsmiðlum að rekstraraðili kjarnorkuversins, sem er undir stjórn Rússa, hefði tilkynnt að dróni hefði lent á hverflabyggingunni í gær með þeim afleiðingum að gat myndaðist á vegg byggingarinnar.
Rússneskir fjölmiðlar birtu yfirlýsingu frá ríkisrekna kjarnorkufyrirtækinu Rosatom þar sem Úkraína var sökuð um vísvitandi árás. Því neita úkraínsk stjórnvöld harðlega.
Sapóritsjía-verið, sem er nálægt víglínunni í suðurhluta Úkraínu, er stærsta kjarnorkuver Evrópu.
Rússar og Úkraínumenn hafa ítrekað sakað hvort annað um að hætta á kjarnorkuslysi með árásum síðan herir Rússlands náðu því á sitt vald árið 2022.
Eins og að leika sér að eldinum
„Engin árás af neinu tagi ætti að eiga sér stað frá eða gegn kjarnorkuverinu,“ er haft eftir Rafael Grossi, forstjóra IAEA, í færslu stofnunarinnar á X seint í gær.
„Að ráðast á kjarnorkusvæði er eins og að leika sér að eldinum.“
Rosatom hélt því fram að drónanum hefði verið stjórnað með ljósleiðara, sem útilokaði „möguleikann á slysni“.
„Í dag erum við komin einu skrefi nær atviki sem er mjög líklegt til að hafa áhrif jafnvel á þá sem búa langt handan landamæra Rússlands og Úkraínu,“ sagði Alexei Likachev, forstjóri Rosatom, við rússneska fjölmiðla.
Úkraínska utanríkisráðuneytið hafnaði ásökununum og sagði í yfirlýsingu að þær væru „órökréttar“.
„Það er óljóst hvers vegna Úkraína myndi ráðast á eigið kjarnorkuver á eigin yfirráðasvæði, sem hún leitast sjálf við að endurheimta undir fullveldi sínu,“ sagði ráðuneytið.