Karlmaður er í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldrar líkamsárásar gagnvart sambýliskonu sinni. Árásina framdi hann daginn eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart sömu konu.
Þá heyrum við í íslenskri konu sem stödd er á skógareldasvæðunum á Spáni en þar og í Frakklandi brenna nú miklir eldar.
Svo sláum við á þráðinn til veðurfræðings sem reynir að rýna í hvar besta veðrið verður um komandi Verslunarmannahelgi.
Nýr heimavöllur KA og ný stúka verða tekin í notkun þegar nágrannalið Þórs heimsækir KA í Bestu deildinni í kvöld.