Dómur verður kveðinn upp í Edition-málinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið er dularfullt fyrir margar sakir en frönsk kona er ein til frásagnar um atburðarás þar sem feðgin fundust látin á hótelherbergi.
Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að bana Catherine Mancel, þrítugri dóttur sinni, í samverknaði við eiginmann sinn Emeric Mancel. Hún er að auki ákærð fyrir brot í nánu sambandi.
Dómur yfir henni verður kveðinn upp klukkan 13:15 í dag.
Segir fjölskylduna hafa viljað deyja saman
Mancel var handtekin á Edition-hótelinu í júní 2025 eftir að starfsmaður hótelsins kom að feðginunum látnum á herbergi fjölskyldunnar. Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmannsins.
Hún hefur ekki sætt gæsluvarðhaldi frá því í september á síðasta ári en hefur í staðinn sætt farbanni.
Fjölskyldan var á ferðalagi um Ísland en þau eru ættuð frá Frakklandi og voru búsett á Írlandi. Mancel hefur sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman.
Hugmyndin hafi kviknað því eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.
Vildi dóttirin deyja?
Verjandi Mancel sagði ekki hægt að sýna með óyggjandi hætti hver aðild hennar að atburðarásinni hefði verið og því yrði að sýkna hana af öllum ákærum.
Til vara fer hann fram á að hún verði sakfelld á grundvelli lagagreinar sem kveður á um að refsing sé vægari ef fyrir liggur brýn beiðni brotaþola um að vera sviptur lífi.
Héraðssaksóknari fer fram á 16 ára dóm yfir henni og segir gögn málsins benda til þess að dóttirin hafi barist fyrir lífi sínu um kvöldið. Engin sé til frásagnar um meint samþykki dótturinnar til að deyja nema Mancel sjálf.
Mancel hafi haft ýmis tækifæri til að kalla eftir aðstoð í ljósi þess að dóttir hennar lést ekki fyrr en nokkrum klukkustundum eftir að fyrstu áverkar voru veittir.