Eigendur fasteignar í vesturbæ Reykjavíkur hafa kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þá kröfu byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar að þeir skuli fjarlægja smáhýsi og girðingu sem standi við lóð þeirra en á borgarlandi. Benda eigendurnir á að girðingin hafi staðið síðan 2002 og smáhýsið verið reist skömmu síðar. Það sé ekki fyrr en núna sem að borgin hafi gert einhverjar athugasemdir.
Fóru eigendurnir einnig fram á að réttaráhrifum ákvörðunarinnar yrði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá nefndinni, þ.e.a.s. að þeim yrði ekki gert að fjarlægja girðinguna og smáhýsið áður en úrskurður um kæruna liggur fyrir.
Í apríl síðastliðnum var eigendunum tilkynnt að þeim bæri að fjarlægja grindverk og smáhýsi sem tilheyrði fasteign þeirra. Umrædd mannvirki væru staðsett á borgarlandi þar sem verið væri að leggja lokahönd á endurhönnun á viðverusvæði á milli húsa við þeirra götu og næstu götu.
Virðast því girðingin og smáhýsið hafa verið reist á sínum tíma án leyfis frá borginni.
Óskað var eftir nánari skýringum á nauðsyn þess að fjarlægja mannvirkin og spurt hvort hægt væri að ná fram markmiðum borgarinnar með vægari úrræðum. Þá var óskað eftir samtali um málið með það að markmiði að finna ásættanlega lausn fyrir alla aðila.
Fjarlægja
Erindi Reykjavíkurborgar var hins vegar ítrekað með bréfi þar sem fram kom að umrætt svæði væri skilgreint sem göngustígur og leik- og dvalarsvæði sem væri ætlað til almenningsnota. Til stæði að ráðast í framkvæmdir, almenningi til hagsbóta, á næstu misserum. Væri því ítrekuð sú krafa að umrædd mannvirki skyldu fjarlægð innan 30 daga frá móttöku bréfsins, ella væri áformað að fjarlægja mannvirkin á kostnað eigenda.
Kærðu eigendurnir þá ákvörðunina til nefndarinnar.
Í kærunni kom fram girðingin hefði staðið á sama stað að minnsta kosti frá árinu 2002 og smáhýsið hafi verið reist ekki löngu síðar. Þegar eigendurnir hefðu keypt fasteignina árið 2024 hafi umrædd mannvirki þegar verið á lóðinni og að fyrri eigendur hafi einnig eignast fasteignina með umræddum mannvirkjum. Girðingin og smáhýsið hafi því staðið á lóðinni um langt árabil án athugasemda af hálfu Reykjavíkurborgar.
Borgin setti sig ekki á móti því að kröfunni um að girðingin og smáhýsið yrðu fjarlægð yrði ekki framfylgt á meðan kæran er til meðferðar.
Nefndin samþykkti kröfuna um frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar á grundvelli þess að ekki væru knýjandi ástæður fyrir því að varhugavert væri að bíða eftir úrskurði nefndarinnar um kæruna.
Smáhýsið og girðingin, sem hafa verið á þessum stað stærstan hluta þessarar aldar, fá því að standa á meðan kæran er til meðferðar.