Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Vernd mannréttinda á vettvangi ESB - DV

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Vernd mannréttinda á vettvangi ESB - DV

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Vernd mannréttinda á vettvangi ESB - DV

Vernd mannréttinda er vaxandi þáttur í samstarfi ríkja á vettvangi ESB. Þótt sambandið hafi upphaflega verið stofnað um efnahagslegt samstarf með áherslu á innri markað, tollabandalag og frjálsa för vöru, þjónustu, fjármagns og fólks, hefur samstarfið þróast yfir á önnur svið. Nú tekur það meðal annars til utanríkismála, öryggis- og varnarmála, umhverfisverndar og málefna sem varða frelsi og mannréttindi.

Þróun mannréttindaverndar innan ESB tengdist frá upphafi þeirri sérstöðu sambandsins að hafa heimildir til að setja reglur um innri markaðinn sem geta haft bein réttaráhrif innan aðildarríkjanna. Vegna þessara valdheimilda komu snemma upp álitaefni um hvernig bregðast skyldi við ef sú staða kæmi upp að ESB-réttur stangaðist á við mannréttindaákvæði stjórnarskrár aðildarríkjanna. Nauðsynlegt þótti að tryggja að borgarar nytu verndar gegn mögulegum brotum af hálfu stofnana sambandsins eða ríkja þegar þau innleiða og beita ESB-rétti.

Mannréttindavernd á vettvangi ESB

Grundvöllur mannréttindaverndar innan ESB er 6. gr. sáttmálans um ESB. Þar er kveðið á um að sambandið viðurkenni þau réttindi og frelsi sem tryggð séu í sáttmála ESB um grundvallarréttindi og að hann hafi sömu stöðu og stofnsáttmálar sambandsins. Þá kemur einnig fram að grundvallarréttindi samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) og sameiginlegum stjórnskipunarhefðum aðildarríkjanna teljist almennar meginreglur í lögum sambandsins.

Sáttmáli ESB um grundvallarréttindi var samþykktur árið 2000 en öðlaðist bindandi gildi með gildistöku Lissabon-sáttmálans árið 2009. Sáttmálinn er því hluti af frumrétti ESB rétt eins og stofnsáttmálarnir sjálfir. Hann bindur bæði stofnanir ESB og aðildarríkin þegar þau framkvæma eða innleiða ESB-rétt. Þetta þýðir að einstaklingar geta byggt á ákvæðum sáttmálans fyrir dómstólum innan aðildarríkjanna þegar mál tengjast framkvæmd sambandsréttar.

Aftur á móti er gildissvið sáttmála ESB um grundvallarréttindi takmarkaðra en gildissvið MSE í þeim skilningi að hann gildir aðeins þegar aðildarríki beita ESB-rétti. Síðarnefndi sáttmálinn tekur á hinn bóginn til allra athafna yfirvalda aðildarríkjanna, óháð því hvort málefnið tengist ESB-rétti eða ekki. Rétt er hér einnig að nefna að mun fleiri ríki eru aðilar að mannréttindasáttmála Evrópu en þau sem eru aðilar að ESB.

Nútímalegur sáttmáli ESB um grundvallarréttindi

Ef litið er til efnis sáttmála ESB um grundvallarréttindi er hann víðtækari og nútímalegri en MSE ef svo má segja. Sá síðarnefndi byggist fyrst og fremst á vernd hefðbundinna borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda, svo sem réttinum til lífs, tjáningarfrelsis, réttlátrar málsmeðferðar og friðhelgi einkalífs. Þótt mannréttindadómstóll Evrópu hafi með dómaframkvæmd sinni þróað sáttmálann og að nokkru aukið vernd ýmissa réttinda, er uppbygging hans enn að stórum hluta mótuð af aðstæðum í Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina þegar hann varð upphaflega til.

Einn skýrasti efnislegi munurinn felst í því að sáttmáli ESB inniheldur mun ítarlegri ákvæði um félagsleg réttindi en mannréttindasáttmáli Evrópu. Í honum eru meðal annars ákvæði um rétt til félagslegrar aðstoðar, vernd starfsmanna, vinnuumhverfi, rétt til foreldraorlofs og vernd gegn óréttmætum uppsögnum. Slík réttindi koma ekki fram með sama hætti í mannréttindasáttmála Evrópu, sem leggur fremur áherslu á hefðbundin frelsisréttindi.

Sáttmáli ESB um grundvallaréttindi tekur einnig mið af samfélagslegri þróun síðustu áratuga. Skýrasta dæmið um það er sjálfstæður réttur til persónuverndar og verndar persónuupplýsinga samkvæmt 8. gr. sáttmála ESB. Mannréttindasáttmáli Evrópu inniheldur ekkert sambærilegt ákvæði, þótt Mannréttindadómstóll Evrópu hafi með víðtækri túlkun 8. gr. MSE talið persónuvernd falla undir friðhelgi einkalífs. Í sáttmála ESB um grundvallarréttindi er þessi réttur hins vegar sérstaklega orðaður.

Annað mikilvægt atriði er að sáttmáli ESB tekur að segja má beinni og skýrari afstöðu gegn mismunun en MSE. Í 21. gr. sáttmála ESB er sérstaklega bannað að mismuna á grundvelli kynhneigðar, aldurs, fötlunar eða erfðafræðilegra eiginleika. Mannréttindasáttmáli Evrópu bannar einnig mismunun samkvæmt 14. gr., en það bann er þrengra þar sem það tengist aðeins öðrum réttindum sem sáttmálinn verndar.

Þá inniheldur sáttmáli ESB ákvæði sem tengjast lífsiðfræði og vernd mannlegrar reisnar á sviðum sem tengjast læknisfræði og vísindum. Þar má nefna bann við klónun manna til æxlunar og reglur um samþykki við læknisfræðilegar rannsóknir. Þessi efni voru lítt til umræðu þegar mannréttindasáttmáli Evrópu var samþykktur og því er ekki að finna sambærileg ákvæði þar.

Mikilvægur efnislegur munur felst einnig í umhverfisvernd. Í 37. gr. sáttmála ESB er kveðið á um að tryggja skuli vernd umhverfis og gæði umhverfisins í samræmi við meginregluna um sjálfbæra þróun. MSE inniheldur ekkert sjálfstætt ákvæði um umhverfisréttindi. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur þó í framkvæmd tengt umhverfisvernd við réttindi á borð við friðhelgi einkalífs og réttinn til lífs, til dæmis þegar mengun eða umhverfisspjöll hafa áhrif á heilsu einstaklinga. Umhverfisvernd birtist því með skýrari hætti í sáttmála ESB sem hluti af stefnu og gildum sambandsins.

Þrátt fyrir að sáttmáli ESB um grundvallarréttindi sé efnislega víðtækari er þó mikilvægt að greina á milli réttinda og stefnumiða í honum. Sum ákvæðin fela í sér bein réttindi sem einstaklingar geta byggt á fyrir dómstólum, svo sem réttinn til persónuverndar eða bann við mismunun. Önnur ákvæði eru fremur stefnumarkandi meginreglur sem miða að því að leiðbeina stofnunum ESB og aðildarríkjum við lagasetningu og framkvæmd réttar. Þetta á meðal annars við um ýmis félagsleg réttindi og ákvæði um umhverfisvernd. MSE byggist aftur á móti að mestu á réttindum sem einstaklingar geta borið beint fyrir sig gagnvart ríkinu.

Í heild má segja að mannréttindasáttmáli Evrópu og sáttmáli ESB um grundvallarréttindi endurspegli að nokkru ólíkar áherslur í evrópskri mannréttindavernd. MSE leggur megináherslu á klassísk borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og vernd einstaklinga gegn ríkisvaldinu, en sáttmáli ESB hefur víðtækari og nútímalegri nálgun sem nær einnig til félagslegra réttinda, gagnaverndar, umhverfisverndar, neytendaverndar, réttar til góðrar stjórnsýslu, réttinda aldraðra, heilsugæslu og annarra réttinda sem tengjast þróun nútímasamfélags og sérstöðu ESB.

Mannréttindadómstóll Evrópu fer með túlkun MSE. Einstaklingar geta kært ríki til dómstólsins telji þeir að brotið hafi verið gegn réttindum þeirra samkvæmt sáttmálanum. Dómar mannréttindadómstólsins eru þjóðréttarlega bindandi fyrir viðkomandi ríki og hafa haft mikil áhrif á þróun mannréttinda í Evrópu. Evrópudómstóllinn í Lúxemborg fer með vald til að túlka og beita sáttmála ESB um grundvallarréttindi og túlkun hans er nátengd markmiðum sambandsins og þeirri þörf að tryggja samræmda framkvæmd sambandsréttar, einkum á sviði innri markaðarins.

Samspil sáttmála ESB og mannréttindasáttmála Evrópu

Í 52. gr. sáttmála ESB kemur fram að réttindi þau sem hann mælir fyrir um og samsvara réttindum í MSE skuli túlkuð í samræmi við dómaframkvæmd mannréttindadómstóls Evrópu. Með þessu er leitast við að tryggja samræmi milli kerfanna tveggja um lágmarksvernd mannréttinda. Þetta er einnig áréttað í inngangsorðum sáttmála ESB um grundvallarréttindi.

Að lokum má segja að bæði MSE og sáttmáli ESB um grundvallarréttindi gegni lykilhlutverki í vernd mannréttinda í Evrópu. MSE hefur að geyma ákvæði um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi með sjálfstæðu eftirlitskerfi. Sáttmáli ESB um grundvallarréttindi byggir að stórum hluta á þessum grunni en gengur jafnframt lengra með því að fela í sér víðtækari og „nútímalegri“ réttindi og stefnumið sem taka mið af þróun samfélagsins, umhverfisvernd og sérstöðu ESB.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður hjá Thales lögfræðiþjónustu og prófessor emeritus við lagadeild HA.

#björgvinsson #davíð #skrifar #vernd #þór


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/19/david-thor-bjorgvinsson-skrifar-vernd-mannrettinda-vettvangi-esb/

📰 Aðrar fréttir

Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 2
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 1
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 2
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 2
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 4
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 4
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 4
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...