Fyrrverandi herforinginn Dan Jarvis hefur verið skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að John Healey sagði af sér embætti. Jarvis tekur við á viðkvæmum tíma fyrir ríkisstjórn Keirs Starmer forsætisráðherra, sem hefur glímt við vaxandi óánægju innan eigin flokks og röð afsagna ráðherra undanfarnar vikur.
Sex ráðherrar hafa nú hætt í ríkisstjórn Starmers á einum mánuði. Keir Starmer forsætisráðherra hefur verið í margs konar vandræðum undanfarnar vikur og mánuði, þá helst fyrir skipun Peters Mandelson í embætti sendiherra í Bandaríkjunum eftir að ljóst varð um náin tengsl hans við Jeffrey Epstein. Staða hans veiktist enn frekar með afsögn John Healey.
Healey varð sjötti ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar til að segja af sér á einum mánuði. Í afsagnarbréfi sínu gagnrýndi hann harðlega fyrirhugaða fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar í varnarmálum til næsta áratugar, svokallaða Defense Investment Plan (DIP), sem enn hefur ekki verið birt opinberlega. Healey sagði að núverandi áform gætu orðið til þess að draga úr öryggi Bretlands.
Fyrrum þjóðaröryggisráðherra Bretlands
Jarvis var fram að skipun sinni þjóðaröryggisráðherra í innanríkisráðuneytinu og gegndi því embætti frá júlí 2024 og var jafnframt ráðherra í ríkisstjórnarskrifstofu frá september 2025 til dagsins í dag. Áður en hann hóf stjórnmálaferil sinn starfaði hann um árabil í breska hernum og gegndi þar stöðu herforingja.
Hann kom fyrst inn á breska þingið árið 2011 sem þingmaður Barnsley Central. Sama ár vakti hann athygli þegar hann varð fyrsti ráðherrann frá lokum síðari heimsstyrjaldar til að segja af sér embætti til að bjóða sig fram í aukakosningum til þings. Við þingkosningarnar 2024 var hann kjörinn þingmaður fyrir Barnsley North.
Aukakosningar í kjördæminu Makerfield fara fram eftir rúma viku. Úrslit þeirra gætu haft áhrif á stöðu Starmers innan Verkamannaflokksins þar sem Andy Burham, borgarstjóri í Manchester, er orðaður við mótframboð í leiðtogasæti flokksins á næsta landsfundi.