Chelsea birti í dag færslu á samfélagsmiðlum sínum sem vakið hefur athygli en þar er félagið að gera grín að tapi Arsenal í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Eftir leikinn auglýsti Chelsea sig sem heimili bikara í Lundúnum og að fólk gæti bókað skoðunarferðir til að skoða bikara á borð við Meistaradeildarbikarinn.
Arsenal mistókst að verða Evrópumeistari í fyrsta skipti í kvöld eftir tap gegn PSG í vítakeppni.