Flugfarþegi Icelandair fékk tilkynningu þess efnis að „lágmarksmönnun“ yrði í dag við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli og af þeim sökum gætu raðir orðið lengri en vanalega.
Farþeginn hafði samband við mbl.is og sendi tilkynninguna sem honum barst. Er hún send frá Icelandair, en í henni segir:
„Lögreglan á Keflavíkurflugvelli hefur tilkynnt að lágmarks mönnun verði við landamæraeftirlit á flugvellinum á morgun. Af þeim sökum gætu raðir orðið lengri en venjulega. Við mælum með að þú mætir tímanlega í landamæraeftirlit eftir innritun til að forðast bið.“
Mbl.is hafði samband við lögregluna á Keflavíkurflugvelli vegna þessa og Isavia. Hvorugur aðili gat veitt nánari upplýsingar um ástandið á flugvellinum og mönnun lögreglu á landamærunum.
Uppfært kl. 11.05:
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli hafði samband við mbl.is skömmu fyrir kl. 11. Segir hún rangt að mönnun lögreglu sé minni á vellinum en vanalega, líkt og Icelandair hafði greint farþegum sínum frá. Hið rétta sé að verið er að innleiða nýtt kerfi á landamærunum og kann það að seinka farþegum eitthvað.
„Vegna innleiðingar á nýju landamærakerfi tekur landamæraeftirlitið lengri tíma en áður þekktist. Rafrænar skráningar og sýnataka lífkenna styrkja öryggi ytri landamæranna á kostnað afgreiðsluhraða,“ segir Ómar Mehmet Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Þá er vert að geta þess að fyrirsögn fréttar var breytt í ljósi þessa. Í upphaflegu útgáfu var sagt að lögregla vari við lágmarksmönnun, en það var Icelandair sem gerði það án samráðs.