Veitingastaðurinn Brixton var opnaður í Reykjavík haustið 2024 með pompi og prakt. Töluvert var fjallað um staðinn í fjölmiðlum og voru áhrifavaldar duglegir að auglýsa staðinn á samfélagsmiðlum. Brynja Dan Gunnarsdóttir áhrifavaldur bauð til dæmis upp á smáborgara frá Brixton þegar hún varð 40 ára í september.
Upphaflega voru eigendur staðarins Sigurður Gunnlaugsson oftast kallaður Siggi Chef, Róbert Aron Magnússon eigandi Götubitahátíðarinnar, Helgi Svavar Helgason trommuleikari í Hjálmum og Baggalúti og Guðmundur Gunnarsson, sem sá um hamborgarabúllu Tómasar í Berlín.
Fyrir tíu mánuðum fóru Helgi Svavar og Guðmundur út úr rekstrinum.
Róbert Aron seldi sinn hlut í staðnum 6. mars 2026. Kaupendur að Brixton eru Jón Örn Jakobsson og Helgi Magnús Hermannsson.
Á heimasíðu staðarins kemur fram að hann sé lokaður vegna breytinga en samkvæmt upplýsingum úr Lögbirtingablaðinu hefur staðurinn verið tekinn til gjaldþrotaskipta.
„Brixton er með nýtt smáborgarakonsept þar sem boðið er upp á skemmtilegt úrval af hamborgurum í smáréttastíl. Bixton opnaði dyr sínar fyrr í síðustu viku með foropnun en opnaði formlega um helgina með pomp og prakt,“ sagði Róbert Aron Magnússon einn af eigendum staðarins í september 2024.
Smáborgarar í 40 ára afmæli
Áhrifavaldurinn Brynja Dan bauð upp á litla hamborgara frá Brixton þegar hún fagnaði 40 ára afmæli.
„Þar sem mig langaði að halda gleðinni utandyra og nýta garðinn, leigði ég tjald frá Exton, ljósaseríur og ýmiss konar partýdót frá Rent a Party og gerði eins hlýlegt úti og hægt var. Ég flutti líka margs konar hluti frá Hlöðunni á Álftanesi yfir í garðinn. Þegar kom að því að velja veitingar, valdi ég það sem er auðvelt að grípa í til að borða, þar sem hugsunin var að veislugestir gætu farið út með matinn. Ég ákvað því að vera með litla hamborgara frá Brixton, sem síðan stálu senunni – enda ekta kúrekamatur sem hægt er að borða hvar sem er. Í boði voru fimm tegundir af borgurum: kjúklingar, svínasíða, nautabrisket, ostborgarar og vegan. Þetta eru bestu borgarar sem ég hef smakkað, og allir voru í skýjunum með þá. Svo gaman að smakka eitthvað nýtt,“ sagði Brynja dreymin á svipinn í viðtali á mbl.is.
Í nóvember 2025 fór TikTok-stjarnan og áhrifavaldurinn Adam Karl Helgason í samstarf við Sigurð Gunnlaugsson og bjuggu þeir til sérstakan matseðil saman.
Grímur Sigurðarson lögmaður hjá Landslögmönnum er skiptastjóri og kemur fram í Lögbirtingablaðinu að hann lýsi eftir kröfum í búið.
