Bransamiðillinn Page Six Hollywood greindi frá fregnum af ráðningu Meriwether í morgun og hafa aðrir Hollywood-miðlar síðan fjallað um málið.
Sjálfsævisagan The Woman in Me kom út árið 2023 og varð metsölubók um heim allan. Spears rekur í bókinni ævi sína frá því hún varð poppstirni sem táningur og alveg fram að því að hún fékk opinbert taugaáfall árið 2007 sem endaði með því að faðir hennar, Jamie Spears, fékk forræði yfir söngkonunni.
Sjá einnig: Britney greinir frá því hvers vegna hún snoðaði sig
Kvikmyndaverið Universal Pictures vann uppboð á réttinum að bókinni árið 2024. Leikstjórinn Jon M. Chu, sem er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt Now You See Me 2 (2016), Crazy Rich Asians (2018) og Wicked (2024), var í kjölfarið ráðinn til að leikstýra myndinni og Marc Platt til að framleiða hana.
Lítið hefur heyrst af aðlöguninni síðan þá og var á tímabili talið að ekkert yrði úr myndinni vegna persónulegra vandræða Britney á síðustu árum.
Velgengni ævisögumyndarinnar Michael (2026) um popparann Michael Jackson virðist hafa endurvakið áætlanirnar og því hefur handritshöfundurinn Liz Meriwether verið ráðinn í verkið
Meriwether á fimmtán ára feril að baki í Hollywood og er höfundur gamanþáttanna New Girl (2011-18), ævisögulegu þáttanna The Dropout (2022), gamandramaþáttanna Dying for Sex (2025) og rómantísku gamanmyndarinnar No Strings Attached (2011). Platt og Chu hafa þegar skrifað drög að myndinni og mun Meriwether sjá um að breyta þeim í fullmótað handrit.
Universal hefur ekki tjáð sig um fregnirnar af ráðningu Meriwether.