Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun staðarmiðilsins DPA um málið en þar er einnig greint frá því að lögreglumenn hafi handtekið 27 ára þýskan mann á vettvangi örskammri stundur eftir árásina.
Leiddur fyrir dómara á eftir
Aðdragandi og ástæða árásarinnar séu í rannsókn en hinn grunaði, sem sé frá Fürstenfeldbruck-héraði, verði leiddur fyrir dómara síðar í dag.
Lögreglan hafi beðið alla sem kunna að hafa orðið vitni að rifrildi eða því sem gæti hafa virkað eins og árás eða slagsmál á stöðinni seint á laugardag eða snemma á sunnudag að hafa samband.
Ekki liggur fyrir hvort þau þekktust eða hvað konan var að gera í Bæjaralandi, að því er DPA greinir einnig frá.
Tengist ekki viðburðinum
Fjöldi ferðafólks sem leggur leið sína frá Þýskalandi og til austurrískra borga á borð við Vín, Salzburg og Innsbruck tekur lest frá stöðinni og er þar oft og tíðum mikil örtröð og mannmergð.
Rosenheimer Herbstfest, viðburður svipaður Oktoberfest-bjórhátíðinni, fer nú fram á svæðinu. Í frétt DPA er haft eftir Abuzar Erdogan, borgarstjóra Rosenheim, að „ekkert bendi til öryggisógnar í borginni okkar eða tengsla við Herbstfest-hátíðina“.
„Rannsóknarlögreglan vinnur náið með saksóknaraembættinu að því að rannsaka aðstæður og ástæður glæpsins,“ hafi hann einnig skrifað í yfirlýsingu.