Samninganefndir Bandaríkjanna og Íran hafa komist að bráðabirgðasamkomulagi um að opna á ný Hormússund og að hefja viðræður um að binda enda á kjarnorkurannsóknir Írana. Samkomulagið bíður þó enn samþykkis frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Frá þessu greinir CNN.
Einnig er enn óvíst hvort leiðtogar Íran hafi fallist á samkomulagið, en samkvæmt heimildum CNN myndi samkomulagið myndi fela í sér afléttingu takmarkana í Hormússundi, og heimila á ný fullt siglingafrelsi skipa þar um.
Þá myndu einnig hefjast 60 daga samningaviðræður um að binda enda á kjarnorkuáætlun Írans, þar á meðal yrði samið um hvað eigi að gera við birgðir landsins af auðguðu úrani.
Haft var eftir Donald Trump í gær að hann væri ekki að flýta sér að gera samkomulag, en skærur hafa brotist út á milli landanna, síðast í dag þegar Íranar skutu eldflaug á Kúveit sem viðbragð við fyrri árásum Bandaríkjanna.