Bogi Ísak Nilsson er fallinn frá

Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri, lést á heimili sínu fimmtudaginn 13. ágúst, 85 ára að aldri, eftir stutt en erfið veikindi.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Bogi fæddist á Siglufirði 24. nóvember 1940. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1968 og hóf starfsferil sinn hjá sýslumanni og bæjarfógeta á Akureyri.
Hann varð sýslumaður í Suður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Eskifirði árið 1976 og rannsóknarlögreglustjóri ríkisins 1986. Bogi varð fyrsti ríkislögreglustjóri Íslands árið 1997 og tók við embætti ríkissaksóknara árið eftir. Því gegndi hann til ársins 2008.
Bogi starfaði einnig sem lögmaður, kenndi lögfræði og ritaði fræðigreinar. Hann var jafnframt öflugur íþróttamaður og kom að uppbyggingu íþróttastarfs.
Eftirlifandi eiginkona hans er Elsa Petersen. Þau eignuðust þrjú börn, níu barnabörn og sex barnabarnabörn.