Þetta segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann lýsir árásum kvöldsins sem „mjög hörðum“.
Bandaríkjamenn og Íranir hafa skipst á árásu síðustu daga og virðist sem vopnahléið sem samið var um í síðasta mánuði sé ekki lengur í gildi.
Um yfirtöku á olíu- og jarðgasframleiðslu í Íran segir Trump að þetta verði líkt því sem ríkisstjórn hans gerði í Venesúela og heldur því fram að það sé að reynast gífurlega vel, bæði fyrir Venesúla og Bandaríkin.
Kharg-eyja er Írönum gífurlega mikilvæg þegar kemur að olíu- og gasframleiðslu. Þar er nánast allri olíu og öllu jarðgasi Íran dælt á flutningaskip. Flutningsgetan þaðan er um sjö milljónir tunna af olíu á dag.
Sendi hermenn sem gætu tekið eyjuna
Í mars lýstu Bandaríkjamenn því yfir að til stæði að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda og að hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Landgönguliðar hafa einnig verið sendir á svæðið.
Umræddir fallhlífarhermenn tilheyra stórfylki (Brigade) úr 82. herdeild (Division) fallhlífarhermanna. Þetta stórfylki hefur verið þjálfað og búið þannig að hægt eigi að vera að senda meðlimi þess hvert sem er í heiminum með 18 klukkustunda fyrirvara.
Hermennirnir eru sérstaklega þjálfaðir til að stökkva úr flugvélum og taka mikilvæga innviði eins og flugvelli.
Sjá einnig: Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda
Þá var umfangsmikil umræða um að hermennirnir gætu verið notaðir til að hernema Kharg-eyju en Bandaríkjamenn höfðu þá gert loftárásir á eyjuna. Meðal annars voru árásir gerðar á flugvöllinn þar, sem gæti gert Írönum erfiðara um vik með að senda liðsauka.
Fréttin verður uppfærð.