Nýr bíll Blóðbankans var afhentur í Kringlunni á dögunum en hélt svo norður yfir heiðar til Akureyrar þar sem heimastöð hans verður. Bíllinn var hannaður af Bílaklæðningu eftir forskrift Blóðbankans og tókst að mati þeirra afar vel. Nýi bíllinn er töluvert minni og léttari en gamli blóðbíllinn og hefur ýmsa eiginleika til þess að liðka fyrir blóðgjöf - enda er bíllinn auðveldur í akstri og getur stoppað hvar sem er.
Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur í Blóðbankanum á Akureyri, segir bílinn léttan og þægilegan, og að það sé kostur að þurfa ekki atvinnubílstjóra. Hún keyrði bílinn sjálf norður.
„Ég gæti faktískt séð stoppað við hvert bæjarhlað og tekið blóð,“ segir Hanna Vigdís.
Þjónusta við landsbyggðina
Efnt var til nafnasamkeppni á nýja bílinn og fékk hann nafnið Björg. Hann er búinn allri nýjustu tækni og þarf meðal annars ekki að vera tengdur við rafmagn heldur er hann útbúinn sólarsellu. „Þetta er algjör bylting og ekki minnst að færa okkur nær fólkinu okkar.“ segir Hanna Vigdís. „Þetta er þjónusta við landsbyggðina.“
Um 37% af öllu blóði sem er gefið fer til fólks með krabbamein og er Blóðbankinn alltaf í leit að fleiri blóðgjöfum. Með tilkomu Bjargar geta starfsmenn Blóðbankans rúntað um sveitir og bæi og boðið fólki að gefa blóð.