Formenn ríkisstjórnarflokkanna standa fyrir blaðamannafundi til að bregðast við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Fundurinn er haldinn í Hörpu og hefst kl. 13. Fyrst halda formennirnir stuttar framsögur á íslensku og taka við spurningum íslenskra blaðamanna. Þá fá erlendir blaðamenn tækifæri til að bera upp spurningar.
Á þessari fréttavakt verður fylgst með fundinum og fjallað um það sem kemur fram á honum.