Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu - DV
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu - DV

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu - DV

Vissulega eru til illa innrættir menn sem hafa þann einbeitta ásetning að vinna öðrum tjón. Þeir eru samt næsta fáir og misgjörðir sjaldnast sprottnar af hreinum illvilja. Oft er það einfaldlega svo að menn eru lentir í öngstræti; það mark og mið sem þeir settu sér leiddi þá afvega — en þeir eru samt ófærir um að játa eigin mistök, snúa af villu síns vegar. Þess í stað forherðast þeir.

Ég sá þetta fyrirbæri kallað „Concorde-Falle“ í grein sem birtist í Welt í fyrradag eftir Klaus Zierer, prófessor í kennslufræðum við háskólann í Augsburg. Concorde-þotan var fyrsta hljóðfráa farþegaþotan og fór á aðeins þremur klukkustundum milli Lundúna og New York. Stórkostlegt tækniundur en samt sem áður varð ljóst þegar á fyrri hluta áttunda áratugarins að fyrirtækið var fjárhagsleg blindgata (þ. finanzielle Sackgasse). Áfram var þó haldið smíði og rekstri þotnanna eða allt þar til hörmulegt flugslys árið 2000 batt enda á verkefnið.

Zierer segir þýska menntakerfið fast í samskonar gildru líkt og sjá megi af sífellt lakara gengi þýskra nemenda á PISA-prófunum en á sama tíma sé æ meiri fjármunum varið til menntamála. Kostnaður við spjaldtölvuvæðingu þýskra skóla hlaupi á milljörðum evra en hafi engum ábata skilað fyrir menntun — þvert á móti. Tölvunotkun í kennslustundum trufli beinlínis skólastarf og nemendur öðlist ekki nauðsynlega færni í grunnfögum því alltaf megi stytta sér leið.

Þeir sem halda því fram að Digitalisierung eða „stafræn umbreyting“ muni bæta skólastarf eru fastir í Concorde-gildrunni að mati Zierers. Spjaldtölvan sé þegar orðið úrelt tæki við kennslu — enda sýnt að hún sé skaðvaldur.

Skólar eiga að vera íhaldssamir

Á föstudaginn var kom út 92. árgangur Verzlunarskólablaðsins en nemendur mínir í ritstjórn blaðsins báðu mig að færa rök fyrir því í grein í blaðinu af hverju skóli ætti að vera íhaldssamur — nokkuð sem ég held reglulega fram. Mér var bæði ljúft og skylt að verða við þessu og lét þess getið í upphafi að mannfólkið hefði starfrækt skóla frá því í fornöld. Af reynslu nokkurra árþúsunda hefði sitthvað lærst og við vissum sem væri að ýmsar gamalgrónar kennsluaðferðir virka vel. Þegar kynntar væru nýjungar í kennsluháttum yrði að hafa hugfast að árangurinn yrði ekki ljós í einni sviphendingu. Yrði gamalgrónum kennsluaðferðum varpað fyrir róða og nýjar teknar upp blasti við sú hætta að framin yrðu óafturkræf menntaspjöll. Þó ekki væri nema af þessari ástæðu einni ættu skólar almennt að vera íhaldssamir. Vitaskuld væri skólum þó brýnt að vera móttækilegir fyrir nýjum kennsluaðferðum og breyttu námsefni en slíkar breytingar þyrftu almennt að vera hægfæra.

Þetta er nokkuð í anda þess sem Zierer skrifar í Welt í fyrradag. En ég hef áður hér á þessum vettvangi minnst á dæmi þess hvernig farið hefur verið offari í breytingum á skólum. Til að mynda eru ýmsar nágrannaþjóðir okkar farnar að gera sér grein fyrir því að gengið hefur verið of langt í útgáfu rafræns kennsluefnis, raunar svo langt að það er talið bitna út af fyrir sig á lesskilningi nemenda. Svo dæmi sé tekið hefur í Svíþjóð verið lögð aukin áhersla á gamalgrónar kennsluaðferðir undanfarin misseri en við blasir þar og víðar að innleiðing tölvutækni hefur um margt verið tilraunakennd. Svipaðar fréttir berast frá Danmörku. Sjálfur heyri ég nemendur kalla eftir auknu kennsluefni á pappír. Samt sem áður þora fáir að gagnrýna tækninýjungar af ótta við að vera álitnir forpokaðir og gamaldags: Menn festast í Concorde-gildrunni sem Zierer kallaði svo. Fyrir liggur að kennslubækur á pappírsformi hafa mikla kosti fram yfir rafrænar bækur. Sömu sögu er að segja af því að draga til stafs. Þau orð sem rituð eru með penna á pappír festast margfalt betur í minni en hin sem hömruð eru á lyklaborðið (og lyklaborðið verður ef til vill orðið úrelt fyrr en varði).

Traust umgjörð

Sömuleiðis hafa þær delluhugmyndir riðið röftum undanfarin ár að próf séu bölvaldur sem helst eigi að útrýma úr skólastarfi. En á móti kemur að nám án lokaprófs er kák eitt, nemandinn þarf í lokin að öðlast yfirsýn og sjá samhengi hlutanna. Samræmd skrifleg eða munnleg lokapróf eru ekki gallalaus en kostir þeirra samt afgerandi og það hafa menn vitað um aldir. Þau sýna ekki eingöngu fram á þekkingu nemandans heldur líka hvar skólinn stendur í samanburði við aðra skóla. Stjórnvöld fá þá sömuleiðis séð hvernig stöðu mála er háttað og á grundvelli niðurstaðna slíkra prófa er hægt að ráðast í umbætur. Þá eru samræmd próf ágæt viðmið við inngöngu í æðri skóla. Sé mönnum umhugað um jafnrétti til náms eru próf nauðsynleg. Alltaf er hætt við að annars konar mat á námi verði huglægt, þannig að kennari mismuni nemendum vitandi eða óafvitandi. Kennari á heldur ekki að vera dómari í eigin sök eins og nú er raunin — kalla á til utanaðkomandi prófdómara við lok náms líkt og tíðkast hefur um aldir.

Síðast en ekki síst skulum við vera minnugir þess að sannleikurinn um manninn er ekki hver hann er og hvað hann getur heldur hvað hann gæti mögulega orðið og mögulega gert. Þess vegna á það að vera æðsta markmið sérhvers siðmenntaðs samfélags að koma sem flestum til sem mests þroska. Það getur ekki gerst nema nemendum séu falin viðfangsefni við hæfi, viðfangsefni sem reyna raunverulega á hæfni þeirra. Þess vegna þurfa menn að raðast í bekki eftir áhugasviði og getu. Þetta þekkjum við úr íþróttunum, í spretthlaupum er keppendum raðað í riðla eftir getu svo hámarka megi árangur.

Ef himinn og haf er á milli kunnáttu nemenda í bekk er hætt við að árangur af náminu verði lítill — að viðmiðið verði lægsti samnefnari í stað þess að keppt sé að hámarksárangri. Skóla á að starfrækja í íþróttaanda líkt og Forngrikkjum var svo umhugað um. Í grundvallaratriðum munu sömu kennsluaðferðir blífa og iðkaðar hafa verið um aldir, því þegar öllu er á botninn hvolft þrífast framfarir og skapandi hugsun best í umhverfi sem er sæmilega fastheldið og myndar þannig trausta umgjörð.

#björn #delluhugmyndir #jón #kennslu #skrifar


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/4/26/bjorn-jon-skrifar-delluhugmyndir-um-kennslu/

📰 Aðrar fréttir

Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
Doktor í félagstölfræði segir að sé litið til sögunnar sé flokki sitjandi forseta oftar en ekki refsað í þingkosningum en Bandaríkjamenn ganga að kjör...
Patrick Stewart er látinn
📅 29.10.2026 👁️ 1
Patrick Stewart er látinn
Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Stewart lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum á miðvikudag.„Í stað blóma er þe...
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
📅 29.10.2026 👁️ 1
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
Una Jónsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir skýr merki um kólnun í hagkerfinu og viðbúið að dragi úr verðbólgu þegar líður á v...
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
Bandaríkjamenn hafa um árabil unnið hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að bandarísk tækni á sviði gervigreindar endi í höndum Kínverja. Huang he...
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
📅 29.10.2026 👁️ 1
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
Birt hefur verið myndefni úr aðdraganda hernaðaraðgerðinnar Veles í Úkraínu. Komust úkraínskir hermenn langt inn fyrir víglínu Rússa og náðu stóru svæ...
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurn Vísis var námskeiðið liður í eftirfylgd aðgerða sem lúta að heiðursofbeldi í þingsályktun um framkvæmda...
King Charles in Guyana as Bahamas visit declared 'diplomatic success'
📅 29.10.2026 👁️ 1
King Charles in Guyana as Bahamas visit declared 'diplomatic success'
As the King left the Bahamas his spokesman said the islands had "a special place in the King's heart".
Stundum gott að fara öruggu leiðina - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Stundum gott að fara öruggu leiðina - Vísir
Þóra er 28 ára markaðsgella og ljósmyndari sem ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn og skemmtileg tískuslys. Þóra Ólafs sækir í stílhreinar flí...
Bólusetning gegn ristli gæti komið í veg fyrir heilabilun
📅 29.10.2026 👁️ 1
Bólusetning gegn ristli gæti komið í veg fyrir heilabilun
Rannsóknir benda til að bólusetning gegn ristli geti dregið úr líkum á heilabilun. Ristill er sjúkdómur af völdum sömu veiru og veldur hlaupabólu. Han...
Israeli opposition accuses Netanyahu of trying to 'delegitimise' election
📅 29.10.2026 👁️ 1
Israeli opposition accuses Netanyahu of trying to 'delegitimise' election
The PM's Likud party has alleged foreign interference and said Arab-led parties "stole" the election after his coalition lost its majority.
Spjallið með Frosta Logasyni | Teitur Atlason – Er fjölmenningin að bresta?
📅 29.10.2026 👁️ 1
Spjallið með Frosta Logasyni | Teitur Atlason – Er fjölmenningin að bresta?
Spjallið með Frosta LogasyniFrosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir r...
Póstkort hlýtur verðlaun í New York sem besta stutta heimildarmyndin
📅 29.10.2026 👁️ 2
Póstkort hlýtur verðlaun í New York sem besta stutta heimildarmyndin
Íslenska heimildarmyndin Póstkort eftir Freyju Kristinsdóttur hlaut um síðustu helgi verðlaun sem besta stutta heimildarmyndin á Nordic International ...
Hvað veistu um... Með allt á hreinu? - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... Með allt á hreinu? - Vísir
Þá lifa frasar úr myndinni enn góðu lífi enda persónur úr myndinni, Stinni Stuð, Harpa Sjöfn að ógleymdum Dúdda rótara, með eindæmum orðheppnar. En hv...
Patrick Stewart látinn - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Patrick Stewart látinn - Vísir
Variety greinir frá en samkvæmt yfirlýsingu á Instagram-reikningi hans háði Stewart skamma baráttu við Alzheimers og Lewy-sjúkdóm áður en hann lést. Í...
Patrick Stewart látinn
📅 29.10.2026 👁️ 2
Patrick Stewart látinn
Breski leikarinn Patrick Stewart er látinn 86 ára að aldri. Stewart er einna helst þekktur fyrir leik sinn í Star Trek myndunum og X-men. Greint var f...
Ásgeir Helgi nýr verslunarstjóri Ofar
📅 29.10.2026 👁️ 2
Ásgeir Helgi nýr verslunarstjóri Ofar
Ofar hefur ráðið Ásgeir Helga Þrastarson sem verslunarstjóra í verslun fyrirtækisins að Borgartúni 37.Ásgeir Helgi kemur til Ofar frá Epli, þar sem ha...
Lífeyrissjóður verzlunarmanna verður Lifa lífeyrissjóður
📅 29.10.2026 👁️ 2
Lífeyrissjóður verzlunarmanna verður Lifa lífeyrissjóður
Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið Lifa lífeyrissjóður að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember. Kemur þetta fram í fré...
Búnaðurinn margfalt verðmætari en gagnaverin sjálf
📅 29.10.2026 👁️ 2
Búnaðurinn margfalt verðmætari en gagnaverin sjálf
Til að komast inn á athafnasvæði AtNorth þarf að fara í gegnum rammgert öryggishlið og greinilegt er að mikil áhersla er lögð á öryggismál. Þar hittum...
Kung-fu panda kveikti Kína-áhugann
📅 29.10.2026 👁️ 2
Kung-fu panda kveikti Kína-áhugann
Þrettán ára Garðbæingur ver frítíma sínum í að læra kínversku, stunda ýmsar kínverskar listir og kynnir Ísland fyrir Kínverjum.Og allt hófst þetta með...
Jack Grealish: England winger dropped by Everton due to 'breach of club discipline'
📅 29.10.2026 👁️ 2
Jack Grealish: England winger dropped by Everton due to 'breach of club discipline'
Jack Grealish is left out of Everton's Carabao Cup tie with Newcastle United on Thursday "due to a breach of club discipline".
Ágreiningur milli kennara og sveitarfélaga um túlkun kjarasamninga
📅 29.10.2026 👁️ 2
Ágreiningur milli kennara og sveitarfélaga um túlkun kjarasamninga
Kennarasamband Íslands hyggst virkja forsenduákvæði kjarasamnings sem snýr að virðismati á kennarastarfinu. Náist ekki sátt í málinu við samninganefnd...
Paris suburb shooting suspect targeted people of Muslim or African appearance, prosecutor says
📅 29.10.2026 👁️ 2
Paris suburb shooting suspect targeted people of Muslim or African appearance, prosecutor says
Kevin T has been charged with murder and attempted murder in connection with a terrorist enterprise.
Á­rekstur á Vestur­lands­vegi tefur um­ferð - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Á­rekstur á Vestur­lands­vegi tefur um­ferð - Vísir
Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir neðan lögreglustöðina við Vínlandsleið. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn, að sögn varðstjóra slökkviliðs. ...
Erna Mist og Þor­leifur selja - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Erna Mist og Þor­leifur selja - Vísir
Um er að ræða 134 fermetra miðhæð í þriggja íbúða húsi sem var byggt árið 1951, ásamt bílskúr. Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú...
Jódís hjólar í Grím vegna greinar hans – „Hin ömurlega misskipting í landinu nærist á slíkri umræðu“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Jódís hjólar í Grím vegna greinar hans – „Hin ömurlega misskipting í landinu nærist á slíkri umræðu“
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, gagnrýnir Grím Atlason, framkvæmdastjóra Geðhjálpar fyrir grein sem hann skrifaði nýlega um um...
MI5 false evidence in neo-Nazi spy case a serious failure, says intelligence watchdog
📅 29.10.2026 👁️ 2
MI5 false evidence in neo-Nazi spy case a serious failure, says intelligence watchdog
Lord Leveson says MI5 lying to multiple courts was as "serious as anything" he has dealt with.
Umferðartafir vegna áreksturs á Vesturlandsvegi
📅 29.10.2026 👁️ 2
Umferðartafir vegna áreksturs á Vesturlandsvegi
Umferðartafir eru á Vesturlandsvegi milli Mosfellsbæjar og Grafarholts vegna áreksturs sem varð þar fyrr í kvöld. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvan...
Spænsk yfirvöld rannsaka orsök lestarárekstursins
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spænsk yfirvöld rannsaka orsök lestarárekstursins
Spænsk yfirvöld rannsaka orsök lestarárekstursins Ætt­ingjar leita frétta af ást­vinum sínum eftir árekstur Renfe- og Iryo-lesta í Castilla-La Mancha....
Fóturinn tekinn af Glettu eftir að hún steig í minkagildru - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fóturinn tekinn af Glettu eftir að hún steig í minkagildru - Vísir
Ásdís Erla Valdórsdóttir hjá Villiköttum útskýrir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist um kött á dýraspítalanum Animalíu. Kötturinn hafi verið...
„Kisur eru að missa fæturna“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
„Kisur eru að missa fæturna“ - Vísir
Ásdís Erla Valdórsdóttir hjá Villiköttum útskýrir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist um kött á dýraspítalanum Animalíu. Kötturinn hafi verið...
Amnesty, J.K. Rowling og mannréttindasamtök sem hafa villst af leið
📅 29.10.2026 👁️ 2
Amnesty, J.K. Rowling og mannréttindasamtök sem hafa villst af leið
Kristinn Theodórsson skrifar: Fyrir þá sem hafa fylgst illa með er hérna svolítil umfjöllun um hvað það þýðir að Amnesty International UK hafi sett kv...
Fundað um hagræðingaraðgerðir hjá Seltjarnarnesbæ
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fundað um hagræðingaraðgerðir hjá Seltjarnarnesbæ
Fundað verður á morgun um næstu skref hagræðingar á Seltjarnarnesi þar sem rekstur hefur verið afar þungur að undanförnu. Þór Sigurgeirsson, bæjarstjó...
Bolsonaro titlar sig sem „raunverulegan forseta Brasilíu“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Bolsonaro titlar sig sem „raunverulegan forseta Brasilíu“
Flavio Bolsonaro, forsetaframbjóðandinn sem hefur nú flúið land, titlar sig „raunverulegan forseta Brasilíu“. Hann sakar Lula um að nota réttarkerfið ...
Taka sex staðhæfingar Hildar og tæta þær í sig: „Það eru ansi kaldar kveðjur“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Taka sex staðhæfingar Hildar og tæta þær í sig: „Það eru ansi kaldar kveðjur“
Kári Sigurðsson formaður Sameykis og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, gagnrýna harkalega fullyrðingar Hildar Björnsdóttur í tengslum við uppsagn...
Raunverulegt Truman Show? 149 tóku þátt í að blekkja Rasmus
📅 29.10.2026 👁️ 2
Raunverulegt Truman Show? 149 tóku þátt í að blekkja Rasmus
Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að það væri búið að vera að plata þig í falinni myndavél í marga mánuði? Danski grínistinn Rasmus Wallbridge v...
Íslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða á þremur mánuðum
📅 29.10.2026 👁️ 2
Íslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða á þremur mánuðum
Íslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða á þremur mánuðum Hagnaður Íslands­banka jókst um rúm­lega 13 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 21,...
Kristinn prestur myrtur í Nígeríu – annar prestur lifði af mannrán
📅 29.10.2026 👁️ 2
Kristinn prestur myrtur í Nígeríu – annar prestur lifði af mannrán
Kristinn prestur myrtur í Nígeríu – annar prestur lifði af mannrán Fréttin29. október 2026ErlentLeave a Comment Presturinn Hills Emmanuel var myrtur e...
Hundreds of GP surgeries lose online services after Silicon Practice collapse
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hundreds of GP surgeries lose online services after Silicon Practice collapse
It will cause huge disruption in some parts of England and Wales, say GP leaders.
Frelsisbjarmar Vals - Útgáfuboð þar sem höfundur stígur á stokk með hljómsveit
📅 29.10.2026 👁️ 4
Frelsisbjarmar Vals - Útgáfuboð þar sem höfundur stígur á stokk með hljómsveit
Valur Gunnarsson rithöfundur var að senda frá sér bókina Frelsisbjarmar og heldur af því tilefni útgáfuboð og tónleika föstudaginn 30. Október í Sölku...
Lawrence lét í sér heyra þegar óviðkomandi var hleypt inn til að sjá nektarsenu hennar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Lawrence lét í sér heyra þegar óviðkomandi var hleypt inn til að sjá nektarsenu hennar
Hollywood stjarnan Jennifer Lawrence varð reið eftir að hún komst að því að starfsfólk kvikmyndavers hafði gónt á nektarsenu af henni án heimildar. Ge...
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu
Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer mikinn á forsíðu Morgunblaðsins í dag og fárast yfir því að stöðugildum hafi fjölgað um 26% hjá Reykjavík...
Ákærður fyrir tilraun til manndráps: Höfuðkúpubraut kærustuna á heimili þeirra í Reykjavík
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ákærður fyrir tilraun til manndráps: Höfuðkúpubraut kærustuna á heimili þeirra í Reykjavík
Héraðssaksóknari hefur höfðað mál á hendur karlmanni fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi.
Ekki von á fleiri uppsögnum hjá Hafnarfjarðarbæ
📅 29.10.2026 👁️ 3
Ekki von á fleiri uppsögnum hjá Hafnarfjarðarbæ
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í uppsagnir svo hægt væri að bregðast við slæmri fjárhagsstöð...
Íranar hafa ekki enn svarað bréfi Bandaríkjanna um nýjar friðarviðræður
📅 29.10.2026 👁️ 3
Íranar hafa ekki enn svarað bréfi Bandaríkjanna um nýjar friðarviðræður
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna sendi Mohsen Rezaei, yfirmanni öryggisráðs Írans, bréf í vikunni að fyrirmælum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í ti...
Lib Dems and Reform in war of words over alleged shove
📅 29.10.2026 👁️ 2
Lib Dems and Reform in war of words over alleged shove
The Lib Dems claim Farage "attempted to shove" their South Devon MP but a Reform source accuses the party of "lying".
Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda
📅 29.10.2026 👁️ 3
Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda
Forstjóri Samskipa fullyrðir að vilji nýrra eigenda standi til þess að efla starfsemina á Íslandi. Íslendingar hafa haldið um stjórnartaumana í félagi...
Met refers itself to police watchdog over Meghan letter
📅 29.10.2026 👁️ 3
Met refers itself to police watchdog over Meghan letter
The police force faces scrutiny over its handling of a letter containing allegations about Meghan's father.
Ók á allt að 193 km hraða á Siglufjarðarvegi – farþegi hlaut heilaskaða
📅 29.10.2026 👁️ 3
Ók á allt að 193 km hraða á Siglufjarðarvegi – farþegi hlaut heilaskaða
Ökumaður sem var tæplega 18 ára gamall þegar hann velti bíl á Siglufjarðarvegi í Skagafirði í apríl 2025 hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbund...
Veru­leikinn breyttur eftir ofsaakstur á ó­nýtum bíl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Veru­leikinn breyttur eftir ofsaakstur á ó­nýtum bíl - Vísir
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra, sem kveðinn var upp í dag. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir hegningar- og umferðarlaga...
Sameining lögregluembætta: Skynsemi eða samþjöppun sem bitnar á landsbyggðinni?
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sameining lögregluembætta: Skynsemi eða samþjöppun sem bitnar á landsbyggðinni?
Fyrirhuguð fækkun lögregluumdæma á Íslandi úr níu í þrjú hefur verið milli tannanna á fólki, einkum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem fram hafa komið ...