Fréttastofa hefur þetta eftir heimildum.
Birta og Gunnar kynntust gegnum sameiginlega vini í Hlíðunum og hófu samband í júní 2014. Þau eiga tvær dætur saman, sú eldri er fædd árið 2021 og sú yngri árið 2025. Eftir rúmlega tólf ára samband hafa leiðir skilið hjá parinu.
Í kjölfar sambandsslitanna hafa þau sett á sölu 94,5 fermetra íbúð sína að Hafnarbraut 12F á Kársnesinu í Kópavogi.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með skjólgóðum húsgarði, sérmerktu bílastæði í bílakjallara og lítilli geymslu. Ásett verð er 78,9 milljónir króna en nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og skoða myndir hér að neðan: