Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg. Bilunar varð vart í gærkvöldi þegar heitt vatn fór að leka upp á yfirborðið austarlega í bænum og í framhaldi var lokað fyrir heitt vatn við Skemmuveg, Nýbýlaveg, Digranesveg og í nærliggjandi götum.
„Það varð bilun í brunni við Skemmuveg,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. „Brunnar eru svona neðanjarðarrými þar sem hitaveitan er með búnað til að stýra lokunum og til að minnka áhrif á svæðin. Bilunin er þar niðri.“
Heitt vatn rann inn í rýmið og var því ekki mögulegt að sinna viðgerðum þar í gærkvöldi.
„Það var bara allt of heitt og hættulegt fyrir starfsfólkið okkar. Og að þessu liggur stofnlögn fyrir stórt svæði í Kópavogi og það þurfti að loka fyrir hana til að tryggja aðstæður í brunninum. Þeir eru þarna niðri að vinna í dag og eru búnir að vera í allan morgun og það er þess vegna sem áhrifasvæðið er svona stórt eins og það er,“ segir hún.
Vonast til að hleypa vatni á eftir hádegið
Silja segir að gangi allt eftir verði mögulega hægt að hleypa heitu vatni á eftir hádegi.
„Ef allt gengur upp, sem það gerir náttúrulega ekki alltaf,“ segir hún.
Það taki þó tíma fyrir þrýsting að byggjast upp að nýju. Fólk er minnt á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatn kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.
„Síðan þegar vatnið byrjar að renna að þá geta komið upp lekar,“ segir Silja sem minnir á að lekar hafi komið upp á nokkrum stöðum þegar loka þurfti fyrir heitt vatn á stóru svæði í Kópavogi fyrir tveimur árum.
„Þá komu gjarnan upp lekar í dreifikerfinu og það er eðlilegt en þá á fólk endilega að láta okkur vita í gegnum neyðarsímann,“ segir hún.
Nýlega komu upp lekar í lögnum á Nýbýlavegi og Álfhólsvegi og segir Silja að það séu lagnir sem tengjast stofnlögninni sem loka þurfti fyrir í dag. „Þannig að þetta er sama fólkið, því miður, sem verður fyrir áhrifum út af þessum bilunum,“ segir hún.
Hægt er að fylgjast með nýjustu upplýsingum á vefsíðu Veitna. Neyðarsími Veitna er 516-6161