TMZ greinir frá ví að hann hefði fundist látinn á heimili sínu í New York í dag eftir að ekki hafði heyrst frá honum í nokkra daga. Dánarorsök er ekki vituð.
Vincent var í bandaríska sjóhernum og barðist í Víetnam en fór í kjölfarið að læra leik. Allan ferilinn lék hann í myndum um bandarísku mafíuna og hlaut lof fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Goodfellas, Carlito's Way, Men of Respect og Witness to the Mob.
Frægasta hlutverk hans var þó án efa hlutverk hans í hinum geysivinsælu þáttum um Soprano-fjölskylduna. Þar lék hann sem fyrr segir Salvatore „Big Pussy“ Bonpensiero í þrjátíu þáttum sem er í innri hring „donsins“ Tony Soprano þangað til að í ljós kemur að hann er í leynilegu vitorði með alríkislögreglunni.
Á síðari árum hefur hann einnig tekið þátt í fjölda raunveruleikaþáttaraða á borð við Celebrity Fit Club og Dancing with the Stars. Hann lætur eftir sig dóttur.