Hallur Hallsson skrifar:
Berlingske Tidende birtir meiriháttar uppljóstrun um spillingu á Íslandi þar sem fjölmiðlafrelsi er ógnað af klíku oligarka sem viðhaldi ótta, græðgi og pólitískum undirróðri; frygt, grådighed og politisk infiltrering. Fyrirsögn BT er: “19 kilder står frem: Industri har årevis drevet et >>moderne oligarki<< i Island: Nítján uppljóstrar stíga fram: Íslandi stýrt af >>nútíma oligarki<< um árabil.“ Þetta eru svakaleg tíðindi ef rétt eru. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra “frontar frétt BT“, horfir djúpt í augu lesenda eins og hann segi: Það er spilling á Íslandi.
Stórfrétt BT er skrifuð af ungum læringi að nafni Emil Eire Frerk Olsen. BT er elsta dagblað Dana, 277 ára gamalt í eigu norska útgáfurisans Amedia. Athygli vert ekki satt? Hverjir eru norskir hagsmunir? Hinn ungi Olsen kveðst hafa sætt hótunum af útsendurum oligarka. “Skyndilega titraði síminn vegna “krítískar fréttar“ um íslenskan sjávarútveg: „Þú ert í vanda ... stórum vanda.“ Þetta er rosaleg afhjúpun ef sönn. Málið er grafalvarlegt, ekki satt? Ísland í helgreipum oligarka.
Páll 1 og Páll 2
Útsendarar oligarka eru sagðir vera annars vegar Páll Vilhjálmsson bloggari unnið sér til óhelgi að hafa skrifað leiðara í Moggann: “...tidligere skrevet ledere for Morgunblaðið“. Stærri synd er ekki til á Efstaleiti. Páll bloggar: “...Tilfallandi hefur aldrei skrifað leiðara Morgunblaðsins. Ekki heldur er hann á launum hjá Samherja eða útgerðinni þótt heimildamenn danska blaðamannsins fullyrði að þannig sé í pottinn búið.“
Hins vegar er Páll Steingrímsson skipstjóri á Akureyri sem var byrlað ólyfjan, fluttur nær dauða en lífi suður, síma stolið og afhentur Rúv Efstaleiti til árása á oligarkana á Akureyri. Heimildamenn Olsen eru sex. Aðeins tveir eru nefndir á nafn: Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, flökkufréttamenn Rúv og Heimildar. Þeir spunnu tröllasögur í ungan læring á BT og eru líklega að rústa ferli drengsins sem mun tengdur rúv í gegn um þáttastjórnanda á þríhjóli. Og hvað er hægt að segja um Daða ráðherra, aldrei kosinn í embætti, situr í skjóli Þorgerðar Katrínar spilltasta stjórnmálamanns í sögu Íslands; kúlulánið og 75 milljarða neyðarsjóður landsmanna afhentur húsbændum eiginmannsins í Kaupþingi haustið 2008.
Nýlendukúgun Dana í stuttu máli
Íslenskir aðildasinnar Esb vinna með Dönum okkar gömlu nýlendukúgurum sem eiga ljóta sögu. Eftir að hafa hálshöggvið Jón Arason 1550 rændu Danir klaustur og kirkjujarðir öllu gulli og silfri og fluttu til Köben1550-1570. Danir í tíð Friðriks III bræddu góðmálmana í ljón Solómons í fullri stærð í Rósinborgarhöll; hvert ljón vegur um 150 kíló. Einokunarverslun1602-1787 grimm nýlendukúgun; danskir kaupmanna skiptu á mygluðu mjöli og verðrmætum þorski. Handritin fóru úr landi á 18. öld, slík var niðurlæging þjóðar. Danir og Bretar skiptu beikoni fyrir þorsk með 50 ára samningi á bak við luktar dyr í Lundúnum árið 1901. Dönskum svínum fjölgaði úr þúsundum í milljónir og breskir togarar veiddu inn á fjörðum og flóum. Rann út 1951. Forfeður okkar hófu baráttuna fyrir landhelginni árið 1952. Þorskastríðin stóðu 1952-1976. Þeir náðu yfirráðum yfir auðlindum íslenskrar þjóðar. Þeir virkjuðu fallvötnin og heita vatnið og fóru í topp fimm á velsældarlistum þjóðanna.
Aðildarsinnar eru fimmt herdeild esb á Íslandi, undirförulir og svikulir hafa sögulega aldrei stutt fullveldi og sjálfstæði Íslands.