Crossfit-konan Bergrós Björndóttir lenti í óskemmtilegri reynslu á móti í Madríd í dag.
Bergrós náði afar góðum árangri í fyrstu grein sinni en gleðin breyttist í óþægilega tilfinningu því hún var flutt á spítala skömmu síðar.
„Ég gat hvorki gengið né talað því blóðsykurinn og blóðþrýstingurinn voru allt of lágir og ég missti meðvitund,“ skrifaði hún á Instagram.
Bergrós var fljót að ná sér og stefnir á að keppa í annarri grein í kvöld.