Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að bæta megi lífskjör almennings í landinu með fleiri leiðum en að hækka laun.
„Langmestu kjarabæturnar við núverandi aðstæður væru að ná niður verðbólgu og vöxtum,” segir Bjarni í viðtali við Morgunblaðið í dag.
„Lægri vextir skila strax meira súrefni til heimilanna og líka inn í atvinnurekstur og með því að koma böndum á verðbólguna má tryggja að meira fæst fyrir þau laun sem fólk fær útborgað. Ráðstöfunartekjur vaxa þegar vextir lækka og verðbólgu er haldið í skefjum,” bætir hann við.
Bjarni nefnir að þær kjaradeilur sem stóru útflutningsgreinarnar standa frammi fyrir kunni að vera til marks um að íslenskt atvinnulíf sé komið úr jafnvægi. Vísar hann þar til kjaradeilna stéttarfélaga við bæði Icelandair og Eimskip.
Lítið megi út af bregða
Hann segir jafnframt að hagfelldar ytri aðstæður hafi hjálpað hagkerfinu og mildað neikvæðu áhrifin af launa- og verðbólguskriði. Bjarni varar þó við því að mögulega megi lítið út af bregða og að kjaradeilurnar sem nú eru í fréttum séu hugsanlega til marks um djúpstæðari vanda.
„Sagan hefur sýnt okkur að þegar launin eru há, vextir háir og gengið sterkt þá verður á endanum eitthvað að gefa eftir.“
Lesa má nánar um málið á bls. 12 og 15 í Morgunblaðinu í dag.