Knattspyrnuhetjan David Beckham og fatahönnuðurinn Victoria Backham fóru í frí til Ibiza með fjölskyldunni á dögunum. Beckham-fjölskyldan getur farið hvert sem er í frí en völdu Ibiza af öllum stöðum sem hljóta að vera meðmæli.
Ibiza er þekkt partíeyja á meðal þeirra ríku og frægu á sumrin og kemur því ekki á óvart að hjónin hafi ákveðið að hefja sumarið á eyjunni. Fram kemur á vef breska Vogue að fjölskyldan hafi farið á bát frá einkastrandklúbbnum Casa Jondal. En strandklbúbburinn Casa Jondal er þekktur fyrir að laða til sín stjörnur á borð við Leonardo DiCaprio, Kate Moss og Dua Lipa. Konurnar í ferðinni klæddust síðkjólum úr léttum efnum og báru rándýrar hönnunartöskur.
Í lok maí er hitinn á Ibiza í kringum 25 til 28 gráður. Vindurinn hjálpar til að kæla kroppinn sem er fullkomið.
Brooklyn Beckham ekki með
Með Beckham-hjónunum var dóttir þeirra Harper og sonurinn Romeo og kærasta hans Kim Turnbull. Það kom ekki á óvart að elsti Beckham-sonurinn Brooklyn Beckham væri ekki með en hann hefur lýst því yfir að hann vilji ekkert með foreldra sína hafa. Hann býr í Bandaríkjunum ásamt eiginkonu sinni.
